Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. desember 2025 17:59 Lögreglan á Ítalíu handtók níu. AP Níu hafa verið handteknir í Ítalíu fyrir að safna rúmlega milljarði íslenskra króna fyrir Hamas-samtökin á Gasa. Fjármununum var safnað undir því yfirskyni að þeir myndu renna til mannúðaraðstoðar í Palestínu.
Einstaklingarnir voru handteknir grunaðir um að hafa „sakaðir um að hafa staðið fyrir fjármögnunaraðgerðum sem taldar eru hafa stuðlað að hryðjuverkastarfsemi“. Í frétt BBC um málið segir að lögreglan hafi einnig lagt hald á eignir að andvirði 1,1 milljarðs íslenskra króna við rannsókn á málinu. Rannsóknin hófst eftir árás Hamas á Ísrael þann 7. október 2023 og var bæði á borði ítölsku lögreglunnar gegn hryðjuverkum og efnahagsbrotadeildarinnar. „Hinir grunuðu söfnuðu framlögum sem voru ætluð almennum borgurum á Gasa, en í ljós kom að yfir 71 prósent þessara fjármuna var veitt í sjóði Hamas til að fjármagna hernaðarvæng samtakanna og styðja við fjölskyldur sjálfsmorðssprengjumanna eða þeirra sem voru í haldi fyrir hryðjuverk,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Lögreglan segist hafa lagst í greiningarvinnu á kerfi fjáröflunar, sem hafði höfuðstöðvar í Genóa og útibú í Mílanó. Mohammad Hannoun, forseti Palestínusamtakanna á Ítalíu, var meðal þeirra sem voru handteknir. Hann hefur áður verið sakaður um að styrkja Hamas en sagði ásakanirnar vera lygi. Samkvæmt ITV er Hannoun sagður vera höfuðpaur ítalska hluta Hamas. Hamas-samtökin hafa verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök af Evrópusambandinu og öðrum ríkjum líkt og Bretlandi, Japan og Bandaríkjunum. Nýjustu átök milli Ísraels og Hamas hófust þann 7. október 2023 með árás Hamas á Ísrael, en vert er að taka fram að saga ríkjanna tveggja nær mun lengra aftur í tímann. Ísrael svaraði grimmilega en vopnahlé náðist loks í október 2025. Þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi eru enn gerðar mannskæðar árásir nær daglega.
Ítalía Hryðjuverkastarfsemi Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira