Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. desember 2025 12:31 Leikmenn Liverpool verða leiddir út á Anfield af sonum Diogo Jota. Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images Synir Diogo Jota heitins munu leiða leikmenn Liverpool og Wolverhampton Wanderers út á Anfield á morgun en þetta verður í fyrsta sinn sem fyrrum félög fráfallna leikmannsins mætast.
Dinis og Duarte Jota eru rúmlega tveggja og fjögurra ára gamlir en þeir eiga yngri systur sem er eins árs og verður væntanlega í fangi móður þeirra. Börnin misstu föður sinn Diogo Jota og frænda sinn André Silva í bílslysi í sumar. Portúgalinn var þá leikmaður Liverpool og nýorðinn Englandsmeistari en hann gekk til liðs við félagið árið 2020 frá Wolverhampton Wanderers. Liverpool hefur heiðrað minningu hans með margvíslegum hætti á þessu tímabili og stuðningsmenn liðsins hafa látið lófaklapp dynja á 20. mínútu í leikjum liðsins. Jota spilaði í treyju númer 20 en enginn leikmaður Liverpool mun aftur skarta treyju númer 20. Arne Slot, þjálfari Liverpool, sagði í leikskrá leiksins að hann vonaðist til að fjölskyldan finni huggun hjá stuðningsmönnum á þessum erfiðu tímum. „Ég hugsa sérstaklega um fjölskyldu Diogo Jota á þessum árstíma, þegar þau halda fyrstu jólin án hans. Það er ekki mitt að segja hvernig þau eiga að leita sér huggunar en ég vona að ástin og umhyggjan, sem umvefur Diogo enn, geti gert það“ sagði Slot. Jota skoraði á sínum tíma 62 mörk fyrir Liverpool í 182 leikjum og vann titlana þrjá sem standa til boða í enska boltanum, FA bikarinn, deildabikarinn og ensku úrvalsdeildina. Sem leikmaður Wolves frá 2017-20, eftir komuna frá Atlético Madrid, skoraði hann 44 mörk í 131 leik.
Enski boltinn Liverpool FC Andlát Diogo Jota Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira