Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Aron Guðmundsson skrifar 16. desember 2025 21:03 Frá leik Vals fyrr á tímabilinu vísir/Vilhelm Valur tyllti sér í þriðja sæti Bónus deildar kvenna með stórsigri á Hamar/Þór í kvöld. Lokatölur í N1 höllinni að Hlíðarenda, 98-67, þrjátíu og eins stigs sigur Vals.
Eins og lokatölur leiksins gefa til kynna voru yfirburðir Valskvenna í leiknum miklir. Fyrsti leikhluti var þó jafn og munaði aðeins tveimur stigum á milli liðanna, 22-20, að honum loknum en í næstu leikhlutum tók forysta Vals að stækka og endaði svo í téðum þrjátíu og eins stigs sigri liðsins. Alyssa Marie Cerino var stigahæst í liði Vals í kvöld með 21 stig, þá tók hún einnig níu fráköst. Í fráköstunum var hins vegar Ásta Júlía Grímsdóttir atkvæðamest með tólf fráköst og þá sá Reshawna Rosie Stone um að mata liðsfélaga sína með stoðsendingum, hún var með níu slíkar í leik kvöldsins. Sigur Valskvenna sér til þess að þær tylla sér í þriðja sæti deildarinnar og eru þar með jafnmörg stig og lið Grindavíkur í öðru sæti, sem og lið KR í fjórða sæti og eru þessi þrjú lið tveimur stigum á eftir toppliði Njarðvíkur. Njarðvík, Grindavík og KR eiga öll leiki til góða á Val annað kvöld og því mun niðurröðun þessara liða á toppi deildarinnar væntanlega breytast eitthvað þá. Eftir sinn fyrsta sigur í deildinni í síðustu umferð gegn Keflavík þurftu leikmenn Hamars/Þórs að sætta sig við tap í kvöld. Liðið er áfram í neðsta sæti deildarinnar með tvö stig. Sama stigafjölda og Ármann sem vermir næsta sæti fyrir ofan.
Bónus-deild kvenna Valur Hamar Þór Þorlákshöfn Körfubolti Mest lesið „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Sjá meira