Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Árni Sæberg skrifar 10. desember 2025 10:36 Jón Viðar, til vinstri, færir sig yfir til almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins og Birgir tekur við af honum tímabundið. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, hefur tekið við fullu starfi sem framkvæmdastjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, tímabundið til eins árs. Með ráðningu Jóns Viðars er markmiðið að efla starf og skipulag almannavarna höfuðborgarsvæðisins. Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri verður settur slökkviliðsstjóri á meðan.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Jón Viðar hafi starfað sem slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu og samhliða því verið framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í yfir tuttugu ár. „Ég segi stundum að slökkviliðsstjórinn hafi verið sýnilegri út á við, en starfið sem framkvæmdastjóri almannavarnanefndar er ekki síður mikilvægt. Nú fæ ég tækifæri til að sinna því af fullum þunga á næsta ári, sem er virkilega ánægjulegt,“ er haft eftir Jóni Viðari. Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins, AHS, sé sameiginleg nefnd þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið. Meginhlutverk hennar sé að efla samstarf og samhæfingu sveitarfélaganna þannig að þau séu sem best undirbúin að sinna skyldum sínum á öllum stigum almannavarna og veita íbúum grunnþjónustu sem, sem sé mikilvæg fyrir daglegt líf íbúa höfuðborgarsvæðisins, svo ekki sé talað um á hættustundu. „Covid-faraldurinn og atburðir í tengslum við eldsumbrot á Reykjanesskaga hafa sýnt nauðsyn þess að almannavarnir séu vel skipulagðar. Gott samstarf og samhæfing skilaði góðum árangri í covidfaraldrinum. Jón Viðar sem framkvæmdastjóri almannavarnanefndar leiddi þetta samstarf ásamt neyðarstjórnum hvers sveitarfélags í góðu samstarfi við ríkisstofnanir. Nú viljum við efla þetta starf enn frekar og teljum Jón Viðar rétta manninn til að leiða þá vinnu og tryggja að höfuðborgarsvæðið sé í stakk búið til að takast á við þær áskoranir sem upp kunna að koma,“ er haft eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur, formanni stjórnar almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins.
Slökkvilið Almannavarnir Vistaskipti Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira