Pavel í baðstofubransann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. nóvember 2025 10:25 Pavel fagnar Íslandsmeistaratitli með Tindastól. Hann hefur alls unnið níu slíka sem leikmaður og þjálfari. Vísir/Hulda Margrét Körfuboltakappinn Pavel Ermolinskij hefur til skoðunar að setja upp potta og gufu á vannýttri lóð á Þingeyri. Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar tekur vel í erindið en bendir á að lóðin hafi áður hýst olíutanka. Pavel segir að um sé að ræða hugmynd á algjöru frumstigi.
Fram kemur í fundargerð nefndarinnar frá 12. nóvember síðastliðnum, sem BB vísar til, að Pavel hafi þann 30. ágúst síðastliðinn lagt umsóknina fram. Um er að ræða lóðina Hafnarstræti 4a, svæði aftan við Hafnarstræti 6. Þar verði hægt að slaka á í baðstofu, í pottum og gufu. Gróf hugmynd hvernig svæðið gæti litið út með pottum og gufu. Pavel bendir í erindi sínu á nálægðina við Kex Hostel í gamla skrifstofuhúsnæði Kaupfélags Dýrfirðinga. Hann segir í samtali við Vísi að hann hafi unnið á hótelinu í sumar og notið sín vel. „Þetta er mjög fallegur bær sem ég tengdist miklum böndum,“ segir Pavel. Hann hafi horft á umrædda lóð á hverjum degi og velt fyrir sér hvað stæði til með hana. Erfitt hafi verið að fá nokkur svör frá Ísafjarðarbæ nema að senda inn erindi. Sem hann og gerði. „Þetta er allt saman bara hugmynd í augnablikinu, ekkert meira. Bara á algjöru frumstigi.“ Hógvært fólk á Þingeyri Kristinn Vilbergsson, athafnamaður og KR-ingur, opnaði Kex-hostelið í Hafnarstræti 7 í byrjun sumars. Pavel spilaði um árabil körfubolta með KR og þekkjast þeir Kristinn vel. Það er að heyra á Pavel að hann óttist að fólk telji að þarna gæti verið á ferðinni margra milljarða króna uppbygging eins og er tilfellið víða um land þar sem baðlón spretta upp að því er virðist eins og gorkúlur. „Það er hógvært fólk á Þingeyri. Við viljum bara henda upp potti og gufu, hafa það næs,“ segir Pavel. Það þurfi ekki allt að vera flott og stórt. Lóðin þar sem Pavel hyggst reisa baðstofu. Kex Hostel sést í bakgrunni.Já.is Eftir farsælan feril sneri Pavel sér að þjálfun en hætti sem þjálfari Tindastóls í maí 2024. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem sérfræðingur í sjónvarpi og var í hlutverki sem slíkur í umfjöllun um Bónusdeild karla í körfubolta síðasta vetur.
Ísafjarðarbær Sundlaugar og baðlón Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira