Gera ekki tilkall til höfuðborgartitils þótt Akureyri verði borg Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2025 10:32 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir borgarskilgreiningu veita Akureyri viðurkenningu að þau sinni mikilvægum verkefnum fyrir landshlutann og landsbyggðina alla. Aðsend Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem verður kannski bráðum borgarstjóri, segir það skipta máli fyrir þá þjónustu sem er veitt á Akureyri og hvaða verkefni Akureyri fer með fyrir sitt nágrenni að bærinn verði borg. Verkefnin verði að vera vel skilgreind og það viðurkennt að Akureyri fari með þessi verkefni. Ef byggð eigi að vera á öllu landinu verði að tryggja öflugt atvinnulíf og þetta sé eitt skref að því.
Sem dæmi sé á Akureyri rekið sérgreinasjúkrahús og alþjóðlegur flugvöllur og Ásthildur telur að það væri gott að renna styrkari stoðum undir þessa þætti til að efla búsetu og fjölga íbúum. „Að geta þjónustað landsbyggðina, Norðurland og austurhluta landsins, enn betur en við gerum í dag," segir Ásthildur sem ræddi þessa skilgreiningarbreytingu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Með því að breytast í borg myndu þau sjá fram á að sjúkrahúsið yrði enn öflugra, námsleiðum myndi fjölga við háskólann og þær stofnanir sem eru á svæðinu yrðu enn öflugri. Sveitarfélagið myndi með þessari skilgreiningarbreytingu fá meira fjármagn frá ríkinu til að sinna þessari þjónustu. Það eigi enn eftir að skilgreina það nákvæmlega í aðgerðaáætlun en þetta sé hugmyndin með nýrri borgarstefnu sem samþykkt var á Alþingi á miðvikudag í síðustu viku. Það skipti mestu máli að efla þær stofnanir sem eru á svæðinu og þær séu ekki allar á höfuðborgarsvæðinu. Það skipti máli svo það haldi áfram að vera byggð á öllu landinu. „Ég held það skipti máli fyrir alla landsbyggðina að við séum með öflugan kjarna annars staðar en á sunnanverðu landinu.“ Ásthildur segir öflugt atvinnulíf leiða til öflugs íþrótta- og menningarlífs. Vísir/Viktor Freyr Ekki bara hægt að ákveða að Akureyri verði borg Ásthildur segir þetta ekki svo einfalt að hægt sé að ákveða þetta. Þetta þurfi að fara í gegnum alþingi og sveitarstjórn og þá sé hægt að fara áfram með verkefnið og ákveða hverju nákvæmlega eigi að breyta, eins og hvort það eigi að vinna að því að millilandaflug sé ekki bara frá október og þar til í maí heldur árið um kring þannig hægt sé að treysta á það. Ásthildur segir öfluga atvinnuuppbyggingu og atvinnulíf á Akureyri og á svæðunum í kring. Þar sé til dæmis krafa um reglulegt millilandaflug og öflugt háskólasjúkrahús. Ásthildur á ekki von á því að stjórnkerfið á Akureyri taki miklum breytingum við slíka breytingu en það þurfi að gera breytingu á lögum og samþykktum verði af þessu svo að hægt verði að kalla Akureyri borg. Ásthildur segir Akureyringa ekki ætla með þessari breytingu að gera tilkall til höfuðborgartitilsins. „Við gerum það ekki. Þó að við séum stundum með dólg þá erum við ekki með svona mikinn dólg. Við erum kurteist fólk hér í Eyjafirði.“ Ásthildur segir taka tíma að framkvæma þessa breytingu. Það þurfi að vanda til verka við bæði aðgerðaáætlun fyrir Akureyrarsvæðið og höfuðborgarsvæðið. Borgarstefnan geri ráð fyrir að farið sé þá leið á báðum svæðum. „Þetta snýst aðallega um verkefnin og hvernig við sinnum þeim.“ Segir hún og að borgartitill skipti ekki eins miklu máli og að þessi skilgreining á verkefnum fari fram. Búin að ákveða að landið eigi allt að vera í byggð Hún segir þetta hafa verið gert í nágrannalöndum okkar. Í Finnlandi hafi til dæmis verið gerð slík stefna og aðgerðaáætlun fyrir sex stærstu borgirnar. Ásthildur segir öflugt atvinnulíf grunnskilyrði þess að hægt sé að tryggja góða þjónustu í samfélaginu. Án þess verði ekki öflugt íþrótta- eða menningarlíf. Ásthildur segir nauðsynlegt að tryggja reglulegt millilandaflug allan ársins hring. Vísir/Tryggvi „Tuttugu þúsund íbúar er ágætis tala,“ segir Ásthildur og að þetta snúist um að verkefnin séu skýr og það sé viðurkennt að Akureyri fari með ákveðin verkefni sem séu nauðsynleg til að tryggja öflugt atvinnulíf. „Ef landið á allt að vera í byggð og við ætlum að vera með hátt þjónustustig eins og ég held að sé vilji þeirra sem stjórna landinu hverju sinni, og okkar allra, þá er mikilvægt að það sé sagt og sett niður á blað til hvers ætlumst við af ákveðnum stöðum á landinu,“ segir hún og að það verði framfaraskref. Efasemdarmenn hvetur hún til að kynna sér málið betur.
Reykjavík Akureyri Akureyrarflugvöllur Alþingi Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Sjúkrahúsið á Akureyri Bítið Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira