Uppgjörið: ÍA - Njarðvík 119-130 | Svakaleg spenna á Skaganum Sverrir Mar Smárason skrifar 16. október 2025 21:22 vísir/Anton Njarðvíkingar unnu sinn fyrsta leik í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir mættu á Akranes og lögðu Skagamenn með ellefu stigum eftir framlengdan leik, 130-119. Skagamenn byrjuðu leikinn vel og voru mest tólf stigum yfir í 2. leikhluta. Þar voru fremstir í flokki hinn bandaríski Darnell Cowart og Josip Barnjak frá Bosníu. Gestirnir úr Njarðvík unnu sig inn í leikinn og náðu að minnka muninn niður í 2 stig áður en liðin gengu til búningsherbergja. Hálfleikstölur 55-53, heimamönnum í vil. Í upphafi síðari hálfleiks var greinilegt að gestirnir ætluðu sér að auka hraðann í leiknum og gekk það vel framan af. Njarðvík var komið mest tíu stigum yfir þegar leið á 3. leikhluta en líkt og þeir sjálfir fyrr í leiknum náðu heimamenn að spyrna sér frá botninum og minnka muninn í 3 stig fyrir lokaleikhlutann. Fjórði leikhluti var algjörlega leikhluti augnabliksins þar sem augnablikið var með ÍA eina stundina og Njarðvík þá næstu. Liðin skiptust á að leiða alveg fram að síðustu sekúndu þegar ÍA var yfir með einu stigi 109-108 og Njarðvík fékk tvö vítaskot. Dwayne Lautier-Ogunleye fékk það verkefni að taka vítin undir miklum látum úr stúkunni. Honum tókst aðeins að hitta úr öðru vítinu og Skagamenn náðu ekki að bæta við. Leikurinn því framlengdur, 109-109. Í framlengingunni voru það gestirnir sem voru mun sterkari. Þeir tóku hvert sóknarfrákastið á fætur öðru og unnu að lokum framlenginguna 10-21 og leikinn 119-130. Öflugur fyrsti sigur þó að torsóttur hafi hann verið. Atvik leiksins Ég verð að nefna vítaskotin sem Dwayne Lautier-Ogunleye tók með fimm sekúndur eftir. Undirritaður hefur aldrei upplifað önnur eins læti í Íþróttahúsinu á Vesturgötu. Hann þurfti að hitta á báðum til þess að vinna leikinn en klikkaði á því fyrra. Ég verð að gefa honum það að það tók mikinn styrk að setja niður það síðara til þess að jafna leikinn og tryggja framlengingu sem Njarðvíkingar unnu svo. Stjörnur og skúrkar Saman fá þrír erlendir leikmenn ÍA þetta. Darnell Cowart 34-4-3, Gojko Zudzum 30-9-3 og Josip Barnjak 29-6-9, sem byrjaði á bekknum og spilaði fimm mínútum minna en hinir tveir. Allir stórkostlegir í kvöld og þurfa að vera það áfram ef ÍA ætlar að vinna leiki. Í liði Njarðvíkur báru tveir af. Brandon Averette 37-4-9 og Mario Matasovic 30-7-4 fóru fyrir sínu liði í dag. Skagamenn þurfa að fá meira framlag frá Styrmi Jónassyni og Lucien Thomas en þeir fengu í dag. Báðir hafa þeir byrjað tímabilið mjög vel. Dómarinn Línan hjá dómurunum var á köflum nokkuð óskýr í dag og lengi vel fannst Skagamönnum í stúkunni halla allverulega á heimaliðið. Ég sá það ekki hafa neitt alltof mikil áhrif á leikinn og gef þeim því bara fína 7 í einkunn. Stemmning og umgjörð Frábær stemning á skaganum og umgjörðin góð í gamla húsinu á Vesturgötu. Vængir í boði og allir í geggjuðum gír. Þetta var samkvæmt heimamönnum síðasti leikurinn í þessu húsi því næsti heimaleikur, á föstudaginn eftir viku, á að fara fram í nýja íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. Það mun færa allt upp á næsta plan í körfuboltanum á Akranesi. Bónus-deild karla ÍA UMF Njarðvík