Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. ágúst 2025 21:36 Hollendingar réðu ekki við „íslensku geðveikina.“ FIBA Íslenska U-20 ára kvennalandsliðið í körfubolta komið í 8-liða úrslit Evrópumótsins sem fram fer í Portúgal eftir ótrúlegan endurkomusigur á Hollandi.
Ísland tapaði öllum leikjum sínum í riðlinum en öll liðin fóru áfram og íslensku stelpurnar mættu Hollandi í 16-liða úrslitum. Íslenska liðið í upphafi leiks.FIBA Leikurinn byrjaði ekki vel og sóknarleikur Íslands var í lamasessi allan 1. leikhluta. Staðan að honum loknum 22-14 Hollandi í vil. Það var allt annað að sjá íslenska liðið í 2. leikhluta. Varnarleikurinn small og flæðið varð betra í sókninni. Svo vel gekk leikhlutinn að Ísland leiddi í hálfleik, 34-33. Því miður fór Holland hamförum í 3. leikhluta og virtist sem sætið í 8-liða úrslitum væri úr augsýn. Ólafur Jónas Sigurðsson er þjálfari liðsins.FIBA Íslenska liðið gaf allt sem það átti í 4. leikhluta og þegar hann var hálfnaður hafði Holland aðeins skorað tvö stig. Á sama tíma hafði íslenska liðið gert 11 stig og munurinn allt í einu kominn niður í þrjú stig. Áfram hélt flugeldasýningin, Ísland raðaði niður stigunum og þó Hollendingar hafi vaknað af værum blundi þá var það hreinlega of seint. Lokatölur 77-74 Íslandi í vil og sæti í 8-liða úrslitum komið í hús. Íslenski bekkurinn fagnar.FIBA Fjórir leikmenn Íslands skoruðu tíu stig eða meira: Ása Lind var stigahæst með 18 stig. Hún tók einnig 5 fráköst. Jana Falsdóttir skoraði 16 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Dzana Crnac setti 12 stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu. Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 11 stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Sara Líf Boama skoraði tvö stig og gaf jafn margar stoðsendingar ásamt því að taka 11 fráköst. Jana Falsdóttir var mögnuð í kvöld.FIBA Dzana Crnac átti virkilega góðan leik.FIBA Ása Lind var stigahæst hjá Íslandi.FIBA Sara Líf Boama reif niður hvert frákastið af fætur öðru.FIBA
Körfubolti Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira