Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Valur Páll Eiríksson skrifar 5. júlí 2025 18:00 Sverrir Páll Hjaltested átti skot í slá í fyrri hálfleik. Vísir/Diego ÍBV og Víkingur gerðu markalaust jafntefli í steindauðum fótboltaleik á Hásteinsvelli í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta síðdegis. Um var að ræða fyrsta leik ÍBV á spánýju gervigrasi á Hásteinsvelli eftir töluverða bið þeirra eftir gúmmíkurli í völlinn. Ágætlega hefur fengið á Þórsvelli framan af sumri þar sem ÍBV vann til að mynda Víking í bikarnum snemmsumars. Víkingar höfðu tök á því að nýta sér misstig Breiðabliks í Mosfellsbæ á fimmtudagskvöldið var og með sigri myndu þeir auka forskot sitt á toppi deildarinnar í fimm stig. Töluverður strekkingur var í Eyjum og höfðu Víkingar vindinn í bakið í fyrri hálfleik en það var ekki að sjá. Þeir sköpuðu sér gott sem ekkert og Eyjamenn ívið hættulegri aðilinn þegar þeir komust í skyndisóknir. Sverrir Páll Hjaltested átti skot í slá um miðjan fyrri hálfleik eftir eina slíka. Daníel Hafsteinsson átti einnig skot í markrammann undir lok hálfleiksins eftir hornspyrnu Víkinga en staðan í hálfleik markalaus. Milan Tomic átti besta færi síðari hálfleiksins, þegar Felix Örn Friðriksson átti frábæra fyrirgjöf frá vinstri, beint á pönnuna á Serbanum en Pálmi Rafn Arinbjörnsson, sem varði mark Víkinga í fjarveru Ingvars Jónssonar, varði vel. Víkingar ógnuðu aðeins undir lokin og Arnór Ingi Kristinsson bjargaði á línu þegar sending Ali Basem fór af varnarmanni í átt að marki á 86. mínútu. Það virtist hins vegar ljóst frá upphafi að við fengjum ekki mark í þennan blessaða leik. Víkingar rúmlega 70 prósent með boltann en höfðu aðeins tvær marktilraunir á markið upp úr því. Frammistaðan lofar ekki góðu fyrir komandi Evrópuverkefni í vikunni en þeim til varnar var vindurinn mönnum til ama í dag. Markalaust jafntefli niðurstaðan og Víkingur með 30 stig á toppi deildarinnar eftir 14 leiki, þremur á undan Breiðabliki. ÍBV með 15 stig og fer upp fyrir FH í 9. sæti deildarinnar, þremur stigum frá ÍA og KA sem verma fallsætin tvö. Atvik leiksins Það segir sitt um skemmtanagildið að truflun hunds snemma leiks sé það markverðasta úr þessum leik. Stjörnur og skúrkar Það verður að játast að ég stend á gati. Það er satt best að segja erfitt að taka til staka leikmenn sem stóðu upp úr eða þá til að setja út á. Þetta var bara hundleiðinlegur og rislítill leikur. Stemning og umgjörð Það er goslokahátíð í Eyjum og stemningin góð eftir því. Víkingar fjölmenntu og létu vel í sér heyra, sungu hvað mest til uppalda Víkingsins Sverris Páls Hjaltested. Dómarar Jóhann Ingi Jónsson og félagar með allt í teskeið í dag í kröfulitlum leik fyrir dómaratríóið. Einn eða tveir skrýtnir aukaspyrnudómar en það er ekkert til að tala um. Gylfi segir niðurstöðuna sanngjarna Gylfi Þór náði sér ekki á strik, frekar en aðrir Víkingar sóknarlega í dag.Vísir/Diego „Það var ekki mikið um færi hjá báðum liðum. Bæði áttu skot í slá í fyrri hálfleik en fyrir utan það var ekki mikið um gæði eða opin færi í leiknum. Þetta er eitthvað sem við verðum að fara yfir og bæta fyrir næsta leik,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings, eftir leik dagsins. Víkingum gekk illa sóknarlega og sköpuðu sér fátt, þá sérlega í fyrri hálfleiknum. „Þetta féll ekki með okkur undir lokin. Þeir hefðu getað skorað í fyrri hálfleik. Við vorum nálægt nokkrum sinnum en ekki úr einhverjum frábærum færum, kannski helst til úr fyrirgjöfum. En heilt yfir var þetta ábyggilega sanngjörn úrslit,“ bætir hann við. Eyjamenn hafi átt að vinna Alex Freyr Hilmarsson [til hægri] segir Eyjamenn hafa átt að taka öll þrjú stigin.Vísir/Hulda Margrét „Frammistaðan var jákvæð. Auðvitað vill maður vinna alla leiki en þetta var fín frammistaða,“ segir Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði ÍBV, eftir leik. „Mér fannst við ná að halda vel í skipulagið, það var aðeins síðustu fimm mínúturnar sem þeir þrýstu okkur niður og maður hefði viljað ná meiri sóknarþunga á köflum en við sköpuðum færi og hefðum átt að skora,“ bætir hann við. Frammistaðan sé jákvæð gegn toppliði deildarinnar og buttu Eyjamenn enda á fjögurra leikja taphrinu með stigi dagsins. „Við náðum að bæta okkur í öðrum teignum. Í varnarleiknum.“ Ekki skorað í 180 mínútur í Eyjum Sölvi Geir hafði ekki miklu að fagna í dag.vísir / diego Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir tæplega ásættanlegt að taka aðeins eitt stig frá Eyjum. Víkingur tapaði 3-0 fyrir Eyjamönnum í bikarnum snemmsumars og var heimsókn dagsins því skárri en sú. Þó er hann ósáttur við að Víkingum hafi ekki tekist að skora í tveimur heimsóknum sumarsins til Heimaeyjar. „Þetta er erfiður útivöllur að sækja en fyrir fram vildum við auðvitað taka þrjú stig. Miðað við hvernig leikurinn þróaðist fannst mér við eiga skilið þrjú stig. Þetta er vissulega betri ferð en síðast þegar við komum hingað. Við verðum bara að sætta okkur við eitt stig núna,“ „Við höfum komið hingað tvisvar í heimsókn og ekki skorað mark sem er ekki nógu gott. Í dag stýrðum við leiknum en áttum mjög erfitt með að opna þá. Við náðum ekki að komast á bakvið vörnina þeirra. Í seinni hálfleik fengum við betri stöður en það var mikið um tæknifeila hjá mínu liði í dag sem gerði þetta erfitt fyrir,“ segir Sölvi Geir. Besta deild karla ÍBV Víkingur Reykjavík