Erlent

Trump hitti Sýr­lands­for­seta í Sádi-Arabíu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Fundur forsetanna mun hafa verið stuttur en Trump er staddur í opinberri heimsókn í Miðausturlöndum og verður þar næstu daga.
Fundur forsetanna mun hafa verið stuttur en Trump er staddur í opinberri heimsókn í Miðausturlöndum og verður þar næstu daga. Hvíta húsið

Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti í morgun Ahmed al-Sharaa bráðabirgðaforseta Sýrlands, á fundi í Sádi-Arabíu.

 Fundurinn var ákveðinn með skömmum fyrirvara en áður höfðu Bandaríkjamenn aflétt viðskiptaþvingunum sem settar voru á Sýrland á meðan Bashar Al Assad var við völd í landinu. Honum var steypt af stóli á dögunum af Al Sharaa sem lýsti sig forseta til bráðabirgða. Nokkur óvissa hefur verið um stöðuna í Sýrlandi því Al Sharaa fer fyrir samtökunum Hayat Tahrir al-Sham sem vesturlönd hafa skilgreint sem hryðjuverkasamtök. Al Sharaa hefur kallað eftir því að þeirri skilgreiningu verði breytt. 

Á fundinum í morgun voru auk forsetanna tveggja, krónprinsinn í Sádi-Arabíu og Erdogan Tyrklandsforseti. Mikil fagnaðarlæti brutust út í höfuðborg Damaskus eftir að ljóst var að viðskiptabanninu hafði verið aflétt en bannið hefur komið í veg fyrir alla fjárfestingu í landinu en mikil endurreisn er framundan í Sýrlandi eftir áralangt borgarastríð.

Samkvæmt talskonu Trumps fór hann fram á það við Sharaa að Sýrland gengi inn í Abraham-samkomulagið og taka upp opinber samskipti við Ísrael. Trump bað Sharaa einnig um að segja erlendum vígamönnum að yfirgefa Sýrland og að vísa palestínskum vígamönnum úr landi.

Þá fór Trump fram á það að ríkisstjón Sharaa aðstoðaði við að koma í veg fyrir upprisu Íslamska ríkisins og að ríkið tæki yfir rekstur umdeildra fangabúða fyrir erlenda vígamenn ISIS og fjölskyldur þeirra í austurhluta Sýrlands.

Sýrlenskir Kúrdar hafa um árabil rekið þessar búðir en hafa lengi kvartað yfir því mikla álagi sem fylgir því og hafa þeir sömuleiðis varað við því að árásir séu tíðar of ástandið hafi versnað til muna. Í heildina hafa Kúrdar haldið um 55 þúsund konum og börnum í þessum búðum.

Ríkisstjórnir heimaríkja þeirra hafa ekki viljað taka við þeim og því hafa þessar konur og börnin þeirra setið föst í búðunum um árabil.


Tengdar fréttir

Bandaríkja­for­seti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“

Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur undirbúið lögfræðiálit um að forseti þeirra megi þiggja lúxusþotu sem er metin á milljarða króna að gjöf frá emírnum í Katar þrátt fyrir að stjórnarskrá banni að forseti taki við gjöfum eða mútum frá erlendum ríkjum. Forsetinn sjálfur er áfjáður í að þiggja þotuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×