Neytendur

Hækka verð á PS5 í Evrópu vegna „krefjandi“ um­hverfis

Magnús Jochum Pálsson skrifar
PlayStation 5 er ekki orðin fimm ára gömul en sölusaga tölvunnar hefur einkennst af seinkunum, hækkunum og skorti á framboði.
PlayStation 5 er ekki orðin fimm ára gömul en sölusaga tölvunnar hefur einkennst af seinkunum, hækkunum og skorti á framboði.

Sony hefur hækkað verðið á PlayStation 5 í Evrópu, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Mið-Austurlöndum og Afríku og segir „krefjandi efnahagsumhverfi“ vera ástæðuna .

Sony greindi frá þessu í tilkynningu á vef sínum á sunnudag. 

Í Evrópu mun verðið á stafrænu útgáfunni af PS5 hækka um ellefu prósent úr 449,99 evrum (um 65.433 íslenskum krónum) í 499,99 evrur (um 72.700 krónur). Í Bretlandi hækkar verðið um svipuð prósentustig, úr 389,99 pundum (um 65 þúsund íslenskar krónur) í 429,99 pund (um 72 þúsund krónur). Hins vegar mun hvorki PS5 Pro né diskadrifs-útgáfa leikjatölvunnar hækka í verði.

Sony segist hafa tekið þessa „erfiðu ákvörðun“ að hækka verðin í ljósi „krefjandi efnahagsumhverfis, þar á meðal hærri verðbólgu og sveiflukenndu gengi.“ 

Það er spurning hvaða áhrif hækkunin mun hafa á verð á PS5-leikjatölvum hérlendis en stafræna útgáfan kostar 85 þúsund krónur í ElkoNova og Tölvutek, um 90 þúsund hjá Símanum og 72 þúsund krónur í Kids Coolshop. Einhverjir bjóða þó upp á fermingarafslætti þessa dagana.

Sony geti nýtt sér aðstæður

Markaðir hafa verið ansi sveiflukenndir eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti tollahækkanir á 180 lönd í upphafi mánaðar. Eftir upphaflegu tollahækkanirnar hefur Trump dregið aðeins í landi, lýst yfir níutíu daga pásu fyrir öll lönd nema Kína og ákveðið að gera tölvur og snjallsíma undanþegin tollum.

Serkan Toto, forstjóri ráðgjafafyrirtækisins Kantan Games, sagði við CNBC að líklegt væri að Sony myndi í kjölfarið hækka verð tölvunnar í Bandaríkjunum.

„Ég yrði mjög hissa ef Sony tækist að halda verði á PlayStation í Bandaríkjunum stöðugu. Núna er ,rétti' tíminn fyrir fyrirtækið að hækka verð því bakslag notenda yrði tiltölulega lítið,“ sagði Toto við CNBC.

Hann sagðist því vænta þess að verðið myndi hækka á endanum þegar ljóst yrði hvernig tollarnir myndu enda. Playstation 5 sem er rúmlega fjögurra ára gömul hefur áður hækkað töluvert í verði, haustið 2022 hækkaði verðið vegna mikillar verðbólgu og í fyrra hækkaði Sony verðið á leikjatölvunni í Japan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×