Viðskipti innlent

Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna

Árni Sæberg skrifar
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm í áralangri deilu Símans við Samkeppniseftirlitið.
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm í áralangri deilu Símans við Samkeppniseftirlitið. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hæfur dæmt Símann til að greiða fjögur hundruð milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna samkeppnislagabrota í tengslum við sölu á enska boltanum.

Dómur Hæstaréttar var kveðinn upp klukkan 15 en hefur ekki enn verið birtur. Því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Tveir hæstaréttardómarar skiluðu sératkvæði og vildu staðfesta dóm Landsréttar. Málskostnaður milli aðila var felldur niður.

Landsréttur hafði staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hefði ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport.

Þar með felldi Landsréttur ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi, sem hafði lagt 500 milljóna króna sekt á Símann. Í kjölfarið skaut Síminn því til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem lækkaði sektina í 200 milljónir.

Sögðu dóminn draga tennurnar úr eftirlitinu

Í ákvörðun Hæstaréttar um að taka málið fyrir sagði að Samkeppniseftirlitið hefði byggt á því að úrslit málsins hefðu verulega almenna þýðingu fyrir beitingu samkeppnisreglna og varðaði afar mikilvæga almannahagsmuni.

Eftirlitið hefði vísað til þess að dómur Landsréttar drægi úr skilvirkri framkvæmd samkeppnisréttar og takmarkaði möguleika Samkeppniseftirlitsins til þess að gæta almannahagsmuna með gerð stjórnvaldssátta.

Ef ákvæði sáttar yrðu túlkuð með þeim hætti að sýna þyrfti fram á sömu atriði og við beitingu tiltekinnar greinar samkeppnislaga myndi ekki þjóna neinum tilgangi að ljúka málum með sátt. Jafnframt teldi eftirlitið að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur að formi og efni. Ákvæði sáttarinnar væru skýrð án tillits til forsögu, úrlausna Samkeppniseftirlitsins, áfrýjunarefndar samkeppnismála og dómstóla.

Hafi fordæmisgildi

Enn fremur væri málsatvikalýsingu í dómi Landsréttar ábótavant og ekki tekin afstaða til fjölmargra málsástæðna eftirlitsins og rökstuðningi dómsins því áfátt.

Að virtum gögnum málsins yrði talið að dómur í því geti haft fordæmisgildi, einkum um réttaráhrif og túlkun stjórnvaldssátta á sviði samkeppnisréttar. Beiðni um áfrýjunarleyfi var því samþykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×