Körfubolti

Búbbluhausinn verður í banni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Isaiah Stewart verður einn af stuðningsmönnunum upp í stúku sem fær minjagrip með honum sjálfum.
Isaiah Stewart verður einn af stuðningsmönnunum upp í stúku sem fær minjagrip með honum sjálfum. Justin Casterline/Getty Images

Isaiah Stewart hefur verið dæmdur í eins leiks bann, án launa, í NBA deildinni eftir að hafa safnað upp sex óíþróttamannslegum villum á sig á tímabilinu. Hann mun taka bannið út í kvöld, á sama tíma og Detroit Pistons mun gefa búbbluhaus í hans mynd.

Búbbluhausar (e. bobbleheads) eru vinsælir minjagripir, þá sérstaklega í NBA deildinni. Yfirleitt eru þeir til sölu en Pistons heiðrar reglulega leikmenn með því að gefa stuðningsmönnum ókeypis búbbluhaus, líkt og verður gert í kvöld með Isaiah Stewart.

Búbbluhausar eru vinsælir minjagripir.ESPN

Talsmaður félagsins staðfesti að planið myndi ekki breytast þó Isaiah væri í leikbanni. Hann verður því einn af þúsundum áhorfenda uppi í stúku sem fær búbbluhaus af sjálfum sér.

Auk þess að vera dæmdur í eins leiks bann hlaut hann 50.000 dollara sekt, auk þess hann mun tapa tekjum upp á rúma 86.000 dollara, samkvæmt ESPN. Atvikið átti sér stað í leik Pistons gegn Indiana Pacers á miðvikudag og má sjá hér fyrir neðan. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×