Viðskipti innlent

Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekju­tap

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Sigurjón Ólason

Tjón samfélagsins vegna enn meiri seinkunar Hvammsvirkjunar í Þjórsá gæti numið fimmtán til þrjátíu milljörðum króna, að mati Samtaka iðnaðarins. Framkvæmdastjóri samtakanna segir stjórnvöld verða að grípa tafarlaust inn í sé reyndin sú að lögin komi í veg fyrir nýjar vatnsaflsvirkjanir.

Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem óttast að ógilding Héraðsdóms Reykjavíkur á gær á virkjunarleyfinu gæti þýtt eins til tveggja ára töf á virkjuninni.

Frá fyrirhugðu stíflustæði Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Gert er ráð fyrir að afl hennar verði 95 megavött.Landsvirkjun

Samtökin hafa áætlað fjárhagstjón vegna skerðinga sem stórkaupendur raforku urðu fyrir í fyrravetur.

„Stærðargráðan var 14 til 17 milljarðar vegna tapaðra útflutningstekna. Ál, kísill, starfsemi gagnavera og fleira. Þannig að ef það er stærðargráðan; eitt, tvö ár þýða þá kannski 15 til 30 milljarðar í tjón,“ segir Sigurður.

Þá sé ótalið tjón vegna glataðra tækifæra og seinkunar á nýrri uppbyggingu. Þetta snúist einnig um nýjar greinar sem ætlað er að standa undir framtíðarhagvexti, eins og á sviði stafrænnar uppbyggingar og gervigreindar.

Nánar er fjallað um málið í frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

„Þetta er mjög slæmt fyrir samfélagið í heild sinni“

Framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins segir grafalvarlegt fyrir íslenskt samfélag að héraðsdómur hafi ógilt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Ef niðurstaðan standi beri stjórnvöld mikla ábyrgð og verði að breyta lögum. Á sama tíma sé verið að einfalda regluverk í Evrópu til að koma grænni orkuöflun af stað.

Ráðherra segir dóm um Hvammsvirkjun áhyggjuefni

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir starfsfólk ráðuneytisins rýna dóm héraðsdóms frá því fyrr í dag þar sem starfsleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Dómurinn sé um 109 blaðsíður og hann geti því ekki verið með miklar yfirlýsingar fyrr en hann er búinn að lesa betur yfir hann. Hann segir líklegt að málinu verði áfrýjað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×