Körfubolti

„Kjafturinn á honum stoppaði ekki allan tímann“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
DeAndre Kane átti eftirminnilega innkomu í íslenska körfuboltann á síðasta tímabili.
DeAndre Kane átti eftirminnilega innkomu í íslenska körfuboltann á síðasta tímabili. stöð 2 sport

Erlendu leikmenn Grindavíkur, og þá sérstaklega DeAndre Kane, reyndust mikilvægir í öllum þeim áföllum sem dundu á bæjarbúum síðasta vetur.

Í þriðja þætti heimildaþáttaraðarinnar Grindavíkur er meðal annars fjallað um geðheilsu Grindvíkinga, leikmanna körfuboltaliða félagsins og bæjarbúa.

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, segir að erlendu leikmenn liðsins hafi átt stóran þátt í því að liðið hélt sönsum á síðasta tímabili, þá sérstaklega Kane.

„Maður kom alveg með einhverjar hugsanir og var niðurlútur á æfingum en útlendingarnir og Valur [Orri Valsson] létu æfingarnar vera skemmtilegar. Þeir töluðu ekkert um þetta, voru ekkert: Hvernig ertu? DeAndre, eins og hann er, kjafturinn á honum stoppaði ekki allan tímann. Láta þennan og þennan heyra það. Þetta var ógeðslega gaman,“ sagði Ólafur.

Klippa: Grindavík - Útlendingarnir björguðu geðheilsunni

Segja má að sigur Grindavíkur á þáverandi Íslandsmeisturum Tindastóls á Sauðárkróki hafi verið snúningspunktur á tímabilinu. Grindvíkingar sigruðu Stólana, 96-101, í framlengingu eftir að hafa komið til baka.

„Þarna fundum við bara: Þetta er alvöru, við erum komnir aftur. Líka algjört hrós á útlendingana okkar. Þá langaði þetta virkilega mikið og drógu vagninn aðeins af stað,“ sagði Jóhann Árni Ólafsson, aðstoðarþjálfari Grindavíkur.

Innslagið úr Grindavík má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Karfan er æði en lífið er skítt“

„Mig langar bara að segja bless til þess að ljúka þessum kafla,“ segir Grindvíkingurinn Bryndís Gunnlaugsdóttir í nýjasta þættinum af Grindavík, þar sem henni er fylgt í kveðjuheimsókn á heimili sitt í Grindavík.

Forðað frá gosi um miðja nótt og sáu hraunið flæða yfir húsin á pílumóti

Í þriðja þætti heimildaþáttaraðarinnar Grindavík er meðal annars farið yfir daginn örlagaríka fyrir sléttu ári síðan, þegar hraun rann inn í bæinn. Guðríður Hanna Sigurðardóttir og Morten Szmiedowicz voru á meðal þeirra sem sáu húsið sitt verða hrauninu að bráð í beinni sjónvarpsútsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×