Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 21. desember 2024 08:02 Flóðið olli gífurlegum skemmdum á mannvirkjum í bænum, meðal annars á Tryggvaskála þar sem vatn fór upp undir glugga. Eberg Elefsen 29. febrúar árið 1968 líður Árnesingum seint úr minni en þá varð mesta flóð í Ölfusá frá því byggð hófst á Selfossi.
Klakastífla myndaðist í ánni, sem er sú vatnsmesta á landinu. Það skilaði sér í gífurlega kröftugu rennsli upp á 2520 rúmmetra, langt yfir meðaltali, sem var 384 rúmmetrar á sekúndu. Áin flæddi yfir bakka sína og vatnshæðin náði 13,74 metrum yfir sjávarmáli. Afleiðingarnar voru hrikalegar. Á dögunum birti Sighvatur Óttarr Elefsen meðfylgjandi myndir inni á facebookhópnum Selfoss- saga í myndum en þær sýna greinilega ummerki flóðsins Árflóðsins svokallaða. Myndirnar eru úr safni Ebergs Elefsen, föður Sighvats en Eberg starfaði sem vatnamælingamaður hjá Vatnamælingum ríkisins í hartnær þrjá áratugi. „Pabbi tók alla tíð mikið af myndum og byrjaði snemma að taka litmyndir. Eftir fráfall hans hef ég skannað allar myndirnar hans,“ segir Sighvatur í samtali við Vísi en hann hefur einnig afhent Héraðsskjalasafni Árnesinga myndirnar til varðveislu. Líkt og sjá má á myndunum olli flóðið olli miklum skemmdum á mannvirkjum og íbúðarsvæðum á Selfossi, þar á meðal við kirkjuna og brúarstæði, og einnig víðsvegar um sveitir þar sem flóðið fór yfir. Flóðið hefur síðan verið rannsakað sem dæmi um áhrif náttúruhamfara tengdum ísstíflum á flóðasvæðum og enn í dag, meira en hálfri öld seinna, má sjá merkingar á Ölfusárbrú um vatnshæðina í flóðinu. 35 hús urðu fyrir skemmdum vegna stórflóðsins.Eberg Elefsen Líkt og sjá má minnti Ölfusá á sig með kröftugum og óvægnum hætti þennan dag.Eberg Elefsen Kirkjan umlukin vatni og ís.Eberg Elefsen Bærinn var umflotin vatni.Eberg Elefsen Ummerkin við brúna.Eberg Elefsen Árflóðið er ljóslifandi í minnum margra Selfyssinga.Eberg Elefsen
Einu sinni var... Náttúruhamfarir Hlaupársdagur Árborg Tengdar fréttir Svona leit Reykjavík út árið 1970 Í upphafi áttunda áratugarins var miðborg Reykjavíkur töluvert öðruvísi en í dag. Þar sem nú er verslunarhúsnæði var áður Morgunblaðshúsið. Þar sem nú er veitingastaðurinn Hjá Jóni var áður Landsíminn og þar sem nú er veitingastaðurinn Apótekið var áður raunverulegt apótek. 18. júní 2023 10:00 Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins. 5. nóvember 2023 08:00 Þegar Þórscafé var heitasti skemmtistaðurinn í Reykjavík Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé er á meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistaða sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Á tímabili var Þórscafé eini staðurinn í Reykjavík þar sem lifandi tónlist var leikin að staðaldri og flestir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum þjóðarinnar komu þar fram. 8. október 2023 09:00 Einstakar ljósmyndir frá tíunda áratugnum Snemma á tíunda áratugnum bjó Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari í Súðavogi og var þar einnig með ljósmyndastúdíó. Í næsta húsi var hljóðverið Grjótnáman þar sem margar af þekktustu plötum íslenskrar tónlistarsögu voru teknar upp. Þar tók Bragi meðfylgjandi ljósmyndir þar sem sjá marga af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. 10. mars 2024 10:49 Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Sjá meira
Svona leit Reykjavík út árið 1970 Í upphafi áttunda áratugarins var miðborg Reykjavíkur töluvert öðruvísi en í dag. Þar sem nú er verslunarhúsnæði var áður Morgunblaðshúsið. Þar sem nú er veitingastaðurinn Hjá Jóni var áður Landsíminn og þar sem nú er veitingastaðurinn Apótekið var áður raunverulegt apótek. 18. júní 2023 10:00
Þegar pönkararnir héngu á Hlemmi Á níunda áratug síðustu aldar gegndi Hlemmur öðru hlutverki sem samkomustaður en í dag. Þegar skýlið á Hlemmtorgi var opnað á sínum tíma var í fyrsta sinn komið opið almenningsrými á Íslandi, þar sem fólk, óháð stétt og stöðu, gat leitað skjóls. Þar sem nú er mathöll var því fyrr á árum nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir einstaklinga sem lifðu utan við og á jaðri samfélagsins. 5. nóvember 2023 08:00
Þegar Þórscafé var heitasti skemmtistaðurinn í Reykjavík Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé er á meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistaða sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Á tímabili var Þórscafé eini staðurinn í Reykjavík þar sem lifandi tónlist var leikin að staðaldri og flestir af þekktustu tónlistarmönnum og hljómsveitum þjóðarinnar komu þar fram. 8. október 2023 09:00
Einstakar ljósmyndir frá tíunda áratugnum Snemma á tíunda áratugnum bjó Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari í Súðavogi og var þar einnig með ljósmyndastúdíó. Í næsta húsi var hljóðverið Grjótnáman þar sem margar af þekktustu plötum íslenskrar tónlistarsögu voru teknar upp. Þar tók Bragi meðfylgjandi ljósmyndir þar sem sjá marga af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. 10. mars 2024 10:49