Reglur um fæðingarstyrk geri ráð fyrir einsleitum hópi námsmanna Lovísa Arnardóttir skrifar 9. september 2024 09:24 Þórdís beið tekjulaus í fimmtán vikur eftir því að Fæðingarorlofssjóður samþykkti umsókn hennar. Mynd/Bítið Þórdís Dröfn Andrésdóttir formaður Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, segir nauðsynlegt að breyta reglum um greiðslur til námsmanna úr fæðingarorlofssjóði þannig þær taki mið af fjölbreyttari hópi námsmanna. Þá þurfi einnig að hækka greiðslurnar.
Þórdís Dröfn beið í fimmtán vikur eftir því að Fæðingarorlofssjóður staðfesti umsókn hennar um rétt til greiðslu á fæðingarstyrk sem er um 220 þúsund krónur á mánuði. Hún segir reglur sjóðsins gera ráð fyrir mjög einsleitum hópi námsmanna. Þórdís Dröfn fór yfir málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þórdís Dröfn sagði frá öllu ferlinu nýlega í grein á vef Heimildarinnar. Þar lýsir hún litlum sveigjanleika sjóðsins í reglum hans. Þrátt fyrir að hafa lokið meistaranámi sínu í Danmörku á undir tveimur árum hafi verið erfitt að fá staðfesta umsóknina því dagsetningarnar hafi ekki passað við það sem sjóðurinn vildi. Því var fimmtán vikna töf á því að umsóknin væri staðfest. Sem dæmi gera reglur sjóðsins ráð fyrir því að fólk ljúki 30 einingum á haustönn, sem hún gerði, en af að hún tók sjúkrapróf voru dagsetningarnar skráðar á vorönn. Umsókninni fylgdi þó bréf frá skólanum þar sem tekið var fram að einingarnar hefðu verið teknar á haustönn. Sjóðurinn vildi þó ekki taka bréfið gilt og vildi frá læknisvottorð. Læknisvottorðið ekki nægilega vel unnið Þórdís hafði skilað skólanum læknisvottorði til að fá að taka sjúkraprófin en vegna þess að sjóðurinn vildi ekki taka bréfið frá skólanum gilt þurfti hún að fara aftur til læknis til að fá annað vottorð. Það sé svo sent til sjóðsins en sjóðurinn tók það ekki gilt því hann taldi það ekki fullnægjandi og að það þyrfti að vinna það betur. Það hafi verið tiltekið tímabilið sem hún var veik en ekki sérstaklega skráð haustönn 2023 á vottorðið. Þórdís fór þá aftur til læknis og fékk annað vottorð sem var að lokum samþykkt. „Þá er ég búin að standa af mér tvö tekjulaus mánaðamót með pínulítið barn.“ Þórdís segir sína sögu ekki einsdæmi. Í starfi sínu í SÍNE hafi hún aðstoðað fjölda fólks við að leysa úr vandamálum sem hafa komið upp í annað hvort afgreiðslu umsókna til Menntasjóðs eða Fæðingarorlofssjóðs. Þórdís segir að það hefði í raun verið betra að vera úti, klára námið, koma undir sig fótunum og jafnvel kaupa íbúð. „Það er ekki auðvelt fyrir ungar barnafjölskyldur að koma sér á skrið á Íslandi.“ Þórdís segir þá framfærslu sem námsmönnum sé reiknuð, almennt og í fæðingarorlofi, of lága. Menntasjóður reikni hærri framfærslu á einstakling í námi með barn en Fæðingarorlofssjóður á námsmann í fæðingarorlofi. Mögulega sé þá verið að taka tillit til þess að fólk fái bara 80 prósent af tekjum sínum í fæðingarorlofi. Engin tekjutenging í viðmiðinu Þórdís segir þessu ferli hafa fylgt mikið álag en að ofan á þetta hafi ekki verið neitt tækifæri fyrir manninn hennar að vinna sér inn fæðingarorlof. Þau hafi komið heim og hann alveg réttindalaus og farið beint að vinna. Hann hafi því enn ekki getað farið í orlof með barninu þeirra og sjái ekki fram á að geta það. „Þegar við flytjum heim er löngu búið að ákveða hverju hann á rétt á. Það er tekið mið af tólf mánaða tímabili sem hefst sex mánuðum áður en barnið fæðist. Sem er þetta tekjutengingartímabil. Ef fólk flytur til íslands á meðgöngu er það þegar búið að missa af þessu. Það er engin tekjutenging. Það er bara lágmark fyrir fólk í 100 prósent starfi sem er 200 þúsund, eins og fæðingarstyrkur námsmanna,“ segir Þórdís og að þau fái jafnvel greitt miðað við lágmark fyrir fólk sem ekki er á vinnumarkaði. Þórdís segist ekki hætt að vinna í þessu þó hún sé komin með greiðslurnar. Hún hafi þegar sent póst á Guðmund Inga Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og fengið svar. Ef reglunum yrði breytt væri gott að gera ráð fyrir fjölbreyttari hóp og aðstæðum námsmanna.
Fæðingarorlof Börn og uppeldi Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Danmörk Háskólar Skóla- og menntamál Íslendingar erlendis Bítið Tengdar fréttir Samfélagið þurfi á börnum að halda Frjósemi hér á landi hefur ekki verið minni frá upphafi mælinga á nítjándu öld. Síðasta áratug hefur þjóðin ekki viðhaldið mannfjölda til framtíðar. Það er brýnt að snúa þróuninni við að mati sérfræðings vilji landsmenn viðhalda góðu velferðarkerfi og innviðum. 17. júlí 2024 20:31 Fölsk vernd fæðingarorlofslaga fyrir verðandi feður? Hjá ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi, var starfsmanni sem hafði nýlega sagt frá því að hann ætti von á barni, sagt upp störfum. Um er að ræða verðandi föður og á fundinum þar sem honum var afhent uppsagnarbréfið sagði hann að þetta gæti ekki verið lögleg uppsögn þar sem hann væri verndaður skv. fæðingarorlofslögum. Svar fyrirtækisins var að þessi vernd gildi einungis fyrir konur. 27. júní 2024 15:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Samfélagið þurfi á börnum að halda Frjósemi hér á landi hefur ekki verið minni frá upphafi mælinga á nítjándu öld. Síðasta áratug hefur þjóðin ekki viðhaldið mannfjölda til framtíðar. Það er brýnt að snúa þróuninni við að mati sérfræðings vilji landsmenn viðhalda góðu velferðarkerfi og innviðum. 17. júlí 2024 20:31
Fölsk vernd fæðingarorlofslaga fyrir verðandi feður? Hjá ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi, var starfsmanni sem hafði nýlega sagt frá því að hann ætti von á barni, sagt upp störfum. Um er að ræða verðandi föður og á fundinum þar sem honum var afhent uppsagnarbréfið sagði hann að þetta gæti ekki verið lögleg uppsögn þar sem hann væri verndaður skv. fæðingarorlofslögum. Svar fyrirtækisins var að þessi vernd gildi einungis fyrir konur. 27. júní 2024 15:00