Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2024 17:15 Þórður Ingason vann fjóra bikarmeistaratitla og tvo Íslandsmeistara með Víkingum en hefur nú fengið félagaskipti í KFA. vísir/Hulda Margrét Félagaskiptaglugginn í íslenska fótboltanum lokast á miðnætti annað kvöld og því fer hver að verða síðastur að styrkja sitt lið fyrir sumarið.
Glugginn hefur verið opinn síðustu tólf vikur og sjálfsagt flest félög búin að ganga frá sínum málum, en enn er sólarhringur til stefnu. Glugginn opnast svo ekki aftur fyrr en 17. júlí. Á meðal nýjustu félagaskipta má nefna að markvörðurinn Þórður Ingason, sem varð tvisvar Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari með Víkingi R., er genginn í raðir Knattspyrnufélags Austfjarða í 2. deild. Annar ríkjandi Íslandsmeistari, Málfríður Anna Eiríksdóttir, hefur fengið félagaskipti heim í Val eftir dvöl í Danmörku í vetur. Nýr liðsfélagi hennar, Camryn Hartman, er einnig komin með félagaskipti fyrir næsta leik Vals sem er við Þrótt á laugardaginn. Enski markahrókurinn Gary Martin er svo kominn í raðir Víkings Ólafsvík en hann kemur að láni frá Selfossi. Bæði lið leika í 2. deild í sumar. Eins og fyrr segir lokast félagaskiptaglugginn á miðnætti annað kvöld og því gæti morgundagurinn orðið líflegur. Fyrir efstu deildirnar verður sumarglugginn svo opinn í fjórar vikur, eða frá 17. júlí til 13. ágúst, en fyrir Lengjudeild kvenna og 2. deild karla lokast sumarglugginn fyrr eða 31. júlí. Félagaskiptagluggi í neðri deildunum er opinn frá 1. febrúar til 31. júlí. Þetta á við 2. deild kvenna, 3. deild karla, 4. deild karla, 5. deild karla og utandeild karla.
Besta deild karla Besta deild kvenna Lengjudeild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira