Fótbolti

PSG setti nýtt met í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Desire Doue fagnar marki sínu í leik kvöldsins
Desire Doue fagnar marki sínu í leik kvöldsins Vísir/Getty

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain fóru á kostum í Meistaradeild Evrópu í kvöld og settu met með því að raða inn mörkum snemma leiks í 6-0 sigri gegn Villarreal.

PSG er nú það lið sem er það fljótasta til þess að skora fjögur mörk í leik í Meistaradeild Evrópu. Það gerðu Evrópumeistararnir á fyrstu sautján mínútum leiksins gegn Villarreal í kvöld. 

Joao Neves, Désiré Doué, Senny Mayulu og Fabián Ruiz skoruðu allir á þessum fyrstu sautján mínútum leiksins og PSG því komið 4-0 yfir. Heimamenn í bullandi veseni. 

Fabian Ruiz bætti við öðru marki sínu snemma í seinni hálfleik og það var síðan David Boly sem innsiglaði 6-0 sigur PSG með marki á 78. mínútu. 

PSG er á toppi Meistaradeildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki sína. 

Þá vann Bayern Munchen sterkan 2-0 sigur gegn Atletico Madrid á útivelli. Eftir markalausan fyrri hálfleik sáu Lennart Karl og Konrad Laimer til þess að þýska liðið heldur heim með stigin þrjú. 

Bayern er með átta stig í áttunda sæti deildarinnar, Atletico Madrid er í 22. sæti með fjögur stig. 

Önnur úrslit kvöldsins: 

Bodo/Glimt 0-0 Lille

- Hákon Arnar spilaði allan leikinn í liði Lille

Feyenoord 0-3 Inter

LASK 4-0 Slovan Bratislava




Fleiri fréttir

Sjá meira


×