Sport

Lét lífið í New York mara­þoninu: „Þetta er óskiljan­legt“

Aron Guðmundsson skrifar
Rachel Apa var aðeins 24 ára gömul
Rachel Apa var aðeins 24 ára gömul Mynd: Hollis Kolmansburger

Hin 24 ára gamla Rachel Apa lét lífið í New York-maraþoninu um síðastliðna helgi.

Frá þessu er greint á vef New York Times en Apa var að hlaupa sitt fyrsta maraþonhlaup. 

Er hún var búin að hlaupa um 38 kílómetra af rúmum 42 hné hún niður í brautinni.

Dánarorsökin er sögð vera rákvöðvalýsa (e. rhabdomyolysis), sjalfgæfur vöðvasjúkdómur sem getur komið fram við mikla áreynslu.

Tilraunir til endurlífgunar stóðu yfir í um sex klukkustundir, fyrst á staðnum þar sem Rachel hné niður en seinna á sjúkrahúsi.

„Þetta er óskiljanlegt,“ lætur faðir Rachel hafa eftir sér í samtali við New York Times. „Fullkomin heilsa, í toppformi, 24 ára gömul.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×