Stafrófið ræður röð fjögurra efstu liðanna í Bestu deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2024 13:31 Jason Daði Svanþórsson skoraði fyrsta mark Blika í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Anton Brink Blikar sitja í toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á FH í gærkvöldi. Þrjú önnur lið eru þó með jafnmörg stig og sömu markatölu. Þá er bara eitt sem ræður röðinni. Blikarnir græða á að vera snemma í stafrófinu því það er stafrófið ræður röð fjögurra efstu liðanna í Bestu deildinni. Breiðablik, Fram, Valur og Víkingur R. unnu öll leiki sína 2-0 í fyrstu umferðinni. Það er því ekki hægt að skilja á milli liðanna hvað varðar árangur. Stafrófið er því það eina sem skilur á milli þessara liða. Þetta er annað skiptið á þremur árum sem Blikar græða á þessu því þeir voru einnig efstir eftir fyrstu umferðina sumarið 2022 þrátt fyrir að vera með sömu stig og sömu markatölu og KR. Að sama skapi tapa nýliðar Vestra á því að vera seint í stafrófinu. Neðstu fjögur lið deildarinnar eru öll með núll stig og markatöluna 0-2. Stjarnan og Vestri sitja í fallsætinu af því að þau eru á eftir FH og ÍA í stafrófinu. KR vann líka sinn leik í fyrstu umferðinni en aðeins með einu marki. Þeir sitja því í fimmta sætinu fyrir neðan efstu fjögur liðin. Þetta er síðan auðvitað bara fyrsta umferðin og sú næsta byrjar strax á föstudagskvöldið og allir leikirnir eru sýndir beint á stöðvum Stöð 2 Sport.
Blikarnir græða á að vera snemma í stafrófinu því það er stafrófið ræður röð fjögurra efstu liðanna í Bestu deildinni. Breiðablik, Fram, Valur og Víkingur R. unnu öll leiki sína 2-0 í fyrstu umferðinni. Það er því ekki hægt að skilja á milli liðanna hvað varðar árangur. Stafrófið er því það eina sem skilur á milli þessara liða. Þetta er annað skiptið á þremur árum sem Blikar græða á þessu því þeir voru einnig efstir eftir fyrstu umferðina sumarið 2022 þrátt fyrir að vera með sömu stig og sömu markatölu og KR. Að sama skapi tapa nýliðar Vestra á því að vera seint í stafrófinu. Neðstu fjögur lið deildarinnar eru öll með núll stig og markatöluna 0-2. Stjarnan og Vestri sitja í fallsætinu af því að þau eru á eftir FH og ÍA í stafrófinu. KR vann líka sinn leik í fyrstu umferðinni en aðeins með einu marki. Þeir sitja því í fimmta sætinu fyrir neðan efstu fjögur liðin. Þetta er síðan auðvitað bara fyrsta umferðin og sú næsta byrjar strax á föstudagskvöldið og allir leikirnir eru sýndir beint á stöðvum Stöð 2 Sport. Toppliðið eftir fyrstu umferð síðustu ár: 2024: Breiðablik, Fram, Valur og Víkingur R. 3 stig og +2 (2-0) 2023: Víkingur R. 3 stig og +2 (2-0) 2022: Breiðablik og KR 3 stig og +3 (4-1) 2021: FH, KR og Valur 3 stig og +2 (2-0) 2020: Breiðablik 3 stig og +3 (3-0) 2019: Fylkir 3 stig og +3 (3-0) 2018: Breiðablik 3 stig og +3 (4-1) 2017: FH 3 stig og +2 (4-2) 2016: ÍBV 3 stig og +4 (4-0) 2015: Leiknir R. 3 stig og +3 (3-0) 2014: Fjölnir 3 stig og +3 (3-0)
Toppliðið eftir fyrstu umferð síðustu ár: 2024: Breiðablik, Fram, Valur og Víkingur R. 3 stig og +2 (2-0) 2023: Víkingur R. 3 stig og +2 (2-0) 2022: Breiðablik og KR 3 stig og +3 (4-1) 2021: FH, KR og Valur 3 stig og +2 (2-0) 2020: Breiðablik 3 stig og +3 (3-0) 2019: Fylkir 3 stig og +3 (3-0) 2018: Breiðablik 3 stig og +3 (4-1) 2017: FH 3 stig og +2 (4-2) 2016: ÍBV 3 stig og +4 (4-0) 2015: Leiknir R. 3 stig og +3 (3-0) 2014: Fjölnir 3 stig og +3 (3-0)
Besta deild karla Breiðablik Fram Valur Víkingur Reykjavík Stjarnan Vestri Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Enski boltinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Enski boltinn Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Körfubolti Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot Enski boltinn Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Formúla 1 „Ég sem faðir er ekkert eðlilega stoltur af honum“ Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira