Axel Óskar orðinn leikmaður KR Valur Páll Eiríksson skrifar 8. mars 2024 16:30 Axel Óskar Andrésson var í byrjunarliði Örebro í dag en hann er á sínu öðru tímabili hjá félaginu. Vikingfk.no Varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur samið við KR um að leika með félaginu í Bestu deild karla í sumar. Axel kemur til liðsins frá Örebro í Svíþjóð.
Axel Óskar er 26 ára gamall örvfættur miðvörður sem hefur komið víða við á ferlinum. Hann er uppalinn í Aftureldingu og lék átta leiki fyrir félagið í 2. deild aðeins 16 ára gamall sumarið 2014. Hann samdi í kjölfarið við Reading og var samningsbundinn liðinu til 2018 en lék með Bath City og Torquay á Englandi sem lánsmaður áður en hann gekk í raðir Viking í Stafangri hvar hann vann norsku B-deildina. Axel Óskar mættur í KR treyjunaMynd: KR Hann var leikmaður Viking frá 2018 til 2020 en hélt þá til Lettlands og spilaði ellefu deildarleiki fyrir lið Riga áður en þeim samningi var slitið á miðju tímabili 2022. Þá hélt hann til Örebro hvar hann hefur leikið síðan en Axel náði samkomulagi um samningslok á dögunum og hefur því verið frjáls ferða sinna. Hann mun nú styrkja vörn KR en KR-ingar hafa misst þá Kristinn Jónsson, Kennie Chopart og Jakob Franz Pálsson úr varnarlínunni frá síðustu leiktíð en litlu bætt við hana. Axel Óskar mun veita þeim Finni Tómasi Pálmasyni, Birgi Steini Styrmissyni og Lúkasi Magna Magnasyni samkeppni um miðvarðarstöðuna hjá Vesturbæjarfélaginu. Besta deild karla hefst með leik Víkings og Stjörnunnar þann 6. apríl en KR hefur keppni sunnudaginn 7. apríl með heimsókn til Fylkis í Lautina. KR mætir Stjörnunni í síðasta leik sínum í Lengjubikarnum klukkan 17:00 í dag en sá leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5.
Besta deild karla KR Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira