Dæmdur fyrir gróft ofbeldi gegn kærustu og sneri strax aftur eftir fangelsisvist Jón Þór Stefánsson skrifar 16. febrúar 2024 12:19 Atvik málsins áttu sér stað á heimili konunnar á Akureyri. Vísir/Tryggvi Páll Karlmaður hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir brot gegn fyrrverandi unnustu sinni. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga konunni, hóta henni og beita ofbeldi. Honum er gert að greiða konunni tvær milljónir í miskabætur.
Málið varðar þrjú atvik sem áttu sér stað í janúarmánuði 2022. Fyrst á nýársdag og svo tólfta og þrettánda janúar. Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir gróf ofbeldisbrot gagnvart konunni, en í því máli var hann sakfelldur í fimm ákæruliðum fyrir brot sem áttu sér stað 2019 og 2020. Í einum ákærulið þess máls var manninum gefið að sök að ráðast á konuna á veitingastað, slá hana ítrekað í andlitið, skvetta kjúklingasúpu yfir höfuð hennar og hella matarolíu í hár hennar. Síðan hrint henni, troðið pappír í kok hennar svo hún gat varla andað og þar á eftir dregið hana í gestaherbergi hússins og neytt hana í kalda sturtu. Upptaka úr öryggismyndavél lykilsönnunargagn Hann sat í fangelsi vegna þessara ofbeldisbrota frá október 2020 til 29. desember 2021, en þá var hann frjáls ferða sinna með ákveðnum skilyrðum og í rafrænu eftirliti. Í dómi héraðsdóms kemur fram að á nýársdag 2022, þremur dögum eftir að hann losnaði, hafi hann komið á heimili konunnar og nauðgað henni. Konan hafði fengið sér öryggismyndavél vegna þess að hún átti von á því að maðurinn myndi koma og í málinu lá fyrir mynd- og hljóðupptaka úr myndavélinni. „Ég hef ekkert að tala við þig“ heyrist konan segja í upptökunni og maðurinn svarar: „Ég hef mikið að tala við þig, af hverju í fokkanum læturðu svona við mig?“ „Ef það væri einhver ástæða til þess að lemja þig [nafn konunnar] þá væri það virkilega núna,“ heyrist hann líka segja á upptökunni. Þá kemur fram að konan hafi ítrekað beðið manninn um að fara. Þá heyrist hún biðja hann um að fara af sér. „Ég fer ekkert af þér, ég á þig, þú veist alveg [nafn konunnar] að ég á þig. Það er enginn að fara að taka þig frá mér […] ég er ekki að fara að beita þig ofbeldi, aldrei aftur, ég sver það, aldrei,“ svarar hann. Fram kemur að nokkrum mínútum síðar heyrist konan enn biðja hann um að hætta. Síðar í upptökunni segir að heyra megi hljóð sem ætla megi að séu stunur og samfarahljóð í örstutta stund. Eftir það hafi þau farið aftur að rífast og maðurinn spurt hvort hann væri of ágengur og hún svarað játandi. Maðurinn neitaði því að hann hafi nauðgað konunni og í málsvörn sinni vísaði hann til fyrri kynferðissamskipta sinna og konunnar. Þau hafi áður verið í sambandi og hún hafi gefið honum undir fótinn með frekara samband og kynlíf í símtali 2021. „Slík samskipti geta engin áhrif haft hér enda er fólki frjálst að skipta um skoðun hvenær sem er og þarf samþykki fyrir þátttöku í kynferðismökum í hvert skipti,“ segir í dómnum. Þá vísaði maðurinn til þess að konan hafi ekki litið á atvikið sem nauðgun þar sem hún teldi það vera ofbeldi. Að hennar mati væri nauðgun „eitthvað brútal sjitt“ og virtist ekki telja að atvikið hafi fallið undir það. Dómurinn sagði „villu“ konunnar um hugtakið nauðgun ekki hafa áhrif á refsinæmi háttseminnar. Kom aftur tæpum tveimur vikum seinna Í öðrum ákæruliðnum var manninum gefið að sök að hafa farið í heimildarleysi á heimili konunnar þann tólfta janúar 2022 og ekki farið þaðan þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir konunnar um það. Þá hafi hann tekið í hár hennar og gripið um hendur hennar, snúið upp á þær og slegið hana í rassinn. Síðan hafi hann hótað henni. „Þegiðu og hlustaðu. Þú ert fífl. Ég slæ þig fokking fast utan undir ef þú fokking heldur ekki kjafti. Er þetta þakklætið fyrir að, horfðu á mig, horfðu á mig. Er þetta þakklætið fyrir það að ég sit fyrir framan dómstóla og játa milljón króna bótakröfu,“ er haft eftir manninum og líka: „Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt, ha?“ Dómurinn féll Héraðsdómi norðurlands eystra. Vísir/Kolbeinn Maðurinn játaði sök í þeim ákærulið að því undanskildu að hann hefði farið á heimili í heimildarleysi og ákæruvaldið féll frá þeim hluta ákærunnar. Daginn eftir það atvik, þann þrettánda janúar, sneri maðurinn aftur á heimili konunnar. Honum var gefið að sök að hafa slegið konuna utanundir með flötum lófa. Og að fyrir vikið hafi hún hlotið roða í andliti. Aftur kemur fram að konan hafi þrábeðið manninn um að fara af heimili hennar. Ógnaði lífi og heilsu konunnar Maðurinn játaði sök, að því undanskildu að hafa slegið konuna. Dómurinn taldi þó gögn málsins sýna fram á að hann hefði gert það og sakfelldi hann fyrir háttsemina. Líkt og áður segir hlaut maðurinn fimm ára fangelsisdóm. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði í raun einungis ekki brotið á konunni þegar hann sat inni og gat ekki nálgast konuna. Því lítur dómurinn á að um óslitið framhald af fyrri brotum mannsins sé að ræða. Háttsemi hans hafi augljóslega verið til þess fallin að ógna heilsu og velferð konunnar. Þá er honum gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur og 2,7 milljónir í sakarkostnað.
Dómsmál Akureyri Kynferðisofbeldi Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent Fleiri fréttir Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sjá meira