Fékk tæknivillu fyrir að skalla boltann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2023 17:02 Brook Lopez spilar með Milwaukee Bucks en hann komst að því að það má ekki bregða á leik og skalla boltann, jafnvel þótt að að sé kominn hálfleikur. Getty/ Stacy Revere Körfuboltamaðurinn Brook Lopez fékk heldur óvenjulega tæknivillu í leik Milwaukee Bucks og Brooklyn Nets í NBA deildinni í körfubolta í nótt.
Lopez virtist bara vera að bregða létt á leik eftir að leiktíminn rann út í fyrri hálfleik. Misheppnað skot fór af körfunni og út á völlinn og Lopez skallaði boltann upp í loftið á leið til búningsklefa. Hann uppgötvaði það hins vegar þegar hann kom aftur inn í salinn að dómarar leiksins höfðu gefið honum tæknivillu fyrir að skalla boltann. Það má sjá þetta atvik hér fyrir neðan. Ef Instagram færslan birtist ekki þá er gott ráð að endurhlaða fréttina. Lopez og félagar í Milwaukee Bucks unnu leikinn örugglega 144-122. Seinni hálfleikurinn hófst þó á því að Jalen Wilson setti niður vítaskotið vegna tæknivillunnar. Þetta var reyndar ekki kvöldið hans Brook Lopez sem klúðraði öllum sex skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna en var með 2 stig, 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 3 varin skot á tæpum 25 spiluðum mínútum. Giannis Antetokounmpo var með 32 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar og Khris Middleton skoraði 27 stig og gaf 10 stoðsendingar. View this post on Instagram A post shared by ESPN (@espn)
NBA Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Fleiri fréttir Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Sjá meira