Fótbolti

Há­punktur fót­bolta­jólanna

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Björn Hlynur bak við barinn.
Björn Hlynur bak við barinn. Vísir/Steingrímur Dúi

Jólin eru tími samveru, ljóss og friðar. Margir líta á daginn í dag sem síðasta eiginlega daginn í jólafríinu, Fyrir öðrum er um að ræða hápunkt jólanna. Enski boltinn rúllaði í allan dag, meðal annars á sportbarnum Ölveri.

Þegar fréttastofu bar að garði var við það að klárast leikur Preston og Leeds í ensku B-deildinni. Á staðnum mátti sjá nokkra gallharða stuðningsmenn Leeds en lið þeirra varð því miður að lúta í lægra haldi fyrir andstæðingum sínum. 

Eftir að hafa haft lokað yfir aðfangadag og jóladag segir bareigandinn að fastagestum hafi þótt nóg um.

„Við vorum með svo stóra daga hérna fyrir, sem endaði á Þorláksmessu. Fólk bara reynir að berja niður hurðina til að komast hérna inn,“ segir Björn Hlynur Haraldsson, leikari og einn eigenda Ölvers. 

Hvert er aðdráttaraflið yfir jólin?

„Það er rosalega mikill fótbolti auðvitað,“ 

Meðal þeirra leikja sem voru á dagskrá í dag voru leikur Burnley og Liverpool. Fjöldi Liverpool-stuðningsmanna var á Ölveri nú síðdegis. Það var einn fimm leikja sem voru á dagskrá á þessum öðrum degi jóla.

„Það er mikið að gera fyrir jólin, og milli jóla og nýárs líka. Svo dettur þetta líka stundum rétt á helgarnar, hvernig fólk er í fríi og svona. En þetta er búið að vera mjög fínt, og verður alveg stappað hérna í kvöld.“

„Ég held að fólk vilji fara að koma sér aðeins út af heimilinu, labba aðeins í snjónum, enda á Ölveri og gera vel við sig.“

Úrslit leikjanna skipti bargesti marga hverju miklu máli. Öðru máli gegni um barinn sjálfan. Einhverjir þurfi að drekkja sorgum sínum yfir úrslitunum á meðan aðrir kaupi bjór til að fagna. Það má því segja að barinn vinni alltaf, sama hvað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×