Lifandi vísindi skýri betur hvernig skuli segja upp áskriftinni Atli Ísleifsson skrifar 14. desember 2023 07:13 Tímaritið Lifandi vísindi kemur úr fjórtán til fimmtán sinnum á ári. Vísir/Vilhelm Rekstraraðila tímaritsins Lifandi vísinda hefur verið gert að bæta upplýsingagjöf til neytenda varðandi það hvernig skuli segja upp áskrift að tímaritinu. Verði ekki gerð bragarbót á innan tveggja vikna skal rekstraraðilinn, Elísa Guðrún ehf., sæta dagsektum.
Þetta kemur fram í nýjum úrskurði Neytendastofu. Þar kemur fram að stofnuninni hafi borist ábending frá neytanda vegna skilmála Lifandi vísinda um uppsögn. Stofnunin hafi þá óskað eftir skýringum Lifandi vísinda um samskipti og upplýsingar við sölu áskriftar. „Eftir svör Lifandi vísinda taldi Neytendastofa upplýsingagjöf félagsins ekki vera í samræmi við lagakröfur. Ekki væru veittar fullnægjandi upplýsingar við söluna, staðfesting á samningi ekki send til neytanda og ekki leiðbeint um rétt til að falla frá samningi. Þá taldi gerði stofnunin ennfremur athugasemdir við skilmála áskriftarinnar þar sem ekki var fjallað um rétt neytenda til að segja upp samningi vegna verðbreytinga á áskriftinni,“ segir á vef Neytendastofu. Símasala í tuttugu ár Í svörum Elísu Guðrúnar kom fram að félagið hafi verið með símasölu nánast óslitið í tuttugu ár og ávallt reynt að fara eftir reglum. Þar væri neytendum boðin tilboðsáskrift og mikilvægt væri að sölumaður upplýsi viðkomandi í símtalinu um að með því að samþykkja tilboðsáskrift sé komin á áskrift. „Þá sé upplýst um að tilkynna þurfi símleiðis eða með tölvupósti ef óskað sé eftir því að hætta áskrift og það sé ítrekað í lok símtalsins ef viðkomandi hafi samþykkt að gangast að áskriftartilboðinu. Þá kom fram að upplýsingablað með öllum upplýsingum um áskriftina sé sent með fyrsta blaðinu auk þess sem skilmálar séu aðgengilegir neðst á vefsíðunni,“ segir í úrskurðinum. Ekki í samræmi við lög Það hafi hins vegar verið niðurstaða Neytendastofu að upplýsingagjöfin hafi ekki verið í samræmi við þær kröfur sem gildandi lög gera til upplýsingagjafar fyrir og eftir að samningur kemst á. Neytendastofa telur því að upplýsingagjöf og viðskiptahættir Lifandi vísinda hafi því ekki verið fullnægjandi og því brotið gegn lögum. Hefur félaginu verið gert að bæta upplýsingagjöfina innan tveggja vikna frá birtingu úrskurðar, sem var 7. desember síðastliðinn, ellegar greiða dagsektir að upphæð 20 þúsund krónum.
Fjölmiðlar Neytendur Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Samstarf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira