Dæmdur fyrir að afhöfða mann með flugvél Samúel Karl Ólason skrifar 22. nóvember 2023 14:11 Menn í svifbúningum falla ekki til jarðar eins og fólk í hefðbundnu fallhlífarstökki heldur geta þeir svifið um, eins og nafn búninganna gefur til kynna, og falla mun hægar til jarðar. Getty Franskur flugmaður hefur verið sakfelldur fyrir að afhöfða fallhlífarstökkvara með flugvélarvæng árið 2018. Flugmaðurinn flaug á fallhlífarstökkvarann, sem hafði skömmu áður stokkið úr þessari sömu flugvél, í um fjögur þúsund metra hæð.
Maðurinn var fundinn sekur um manndráp í morgun og dæmdur til tólf manaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar, samkvæmt frétt Le Parisien. Atvikið átti sér stað í júlí 2018. Þá fór hinn fjörutíu ára gamli Nicolas Galy um borð í flugvél með fallhlíf og klæddur í svifbúning. Minna en hálfri mínútu eftir að hann og nokkrir aðrir stukku úr flugvélinni lenti hann á væng hennar af svo miklum krafti að höfuð hans fór af búknum. Alls stukku átta úr flugvélinni í fallhlíf til viðbótar við Galy og annan mann sem voru í svifbúningum. Menn í svifbúningum falla ekki til jarðar eins og fólk í hefðbundnu fallhlífarstökki heldur geta þeir svifið um, eins og nafn búninganna gefur til kynna, og falla mun hægar til jarðar. Í áðurnefndri frétt segir að samskiptaleysi hafi leitt til þess að flugmaðurinn lækkaði flugið hratt, um leið og Galy og hinir stukku úr flugvélinni, og stefndi aftur að flugvellinum. Það leiddi til þess að hann flaug á Galy. Neyðarfallhlíf Galy opnaðist og höfuðlaust lík hans sveif til jarðar. Fallhlífarskólinn sem flugmaðurinn starfaði við var einnig sektaður um tuttugu þúsund krónur, þar sem flugmaðurinn var ekki með virkt flugleyfi þegar Galy lést.
Frakkland Fréttir af flugi Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Sjá meira