Neytendur

Fær tíu miða klippi­kort hjá Niceair endur­greitt

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Niceair lýsti gjaldþroti í maí 2023.
Niceair lýsti gjaldþroti í maí 2023. Vísir/Tryggvi Páll

Þrotabúi Niceair hefur verið dæmt að endurgreiða viðskiptavini 240 þúsund krónur vegna klippikorts sem viðskiptavinurinn hafði ekki fullnýtt áður en Niceair lýsti yfir gjaldþroti. Niceair hætti skyndilega rekstri í apríl á þessu ári og lýsti yfir gjaldþroti mánuði síðar. 

5. apríl síðastliðinn var hlé gert á starfsemi félagsins og flugferðum aflýst. Fram kom í tilkynningu frá erlendum flugrekstraraðila félagsins, HiFly, að hann hafi misst einu flugvél félagsins vegna vanskila við eigendur hennar. Það gerði Niceair ómögulegt að standa við skuldbindingar gagnvart farþegum. 

Norðlendingar lýstu margir yfir mikilum vonbrigðum í kjölfarið enda höfðu margir nýtt sér þá nýjung að kaupa klippkort hjá félaginu. Kortið kostaði 300 þúsund krónur 24. október í fyrra og var innifalið í því tíu flugferðir til og frá Akureyri. 

Fram kemur í úrskurði kærunefndar vöru- og þjónustukaupa sem kveðinn var upp á mánudag að viðskiptavinurinn hafi í október í fyrra fengið upplýsingar um að skilmálar klippikortsins kvæðu á um að „allar dagsetningar til og frá áfangastaðnum eru bókanlegar svo framarlega að það séu laus sæti í vélinni. Lágmarks bókunarfyrirvari er 24 tímar og er aðeins bókanlegt í gegnum [...]. Enginn fyrningartími er á kortinu“.

Hér að neðan má lesa keimlíka frásögn viðskiptavinar Niceair. Taka skal fram að úrskurðurinn varðar ekki mál Sigurbjörns Árna.

Fram kemur í úrskurðinum að 19. apríl síðastliðinn hafi viðskiptavinurinn sent tölvupóst á Niceair og óskað eftir að fá að bóka flug í júlí með klippikortinu. Sama dag hafi honum borist svar þar sem segir að „óvíst er að við verðum farin að fljúga aftur á þessum tíma“.

Daginn eftir hafi viðskiptavinurinn svarað: „Hm, ef skýrleiki verður ekki til staðar næsta fimmtudag 20.04. um hádegi kl. 12.00, þá vil ég fá borgað til baka þar sem eftir er á kortinu (240.000 krónur)...“

Niceair hafi svarað því til að endurgeiðslur kortagreiðsla væru í forgangi en þegar þeim væri lokið yrðu endurgreiðslur gjafabréfa teknar til skoðunar. Viðskiptavinurinn hafi ítrekað erindið 2. og 6. maí en ekki fengið nein svör. 

Segir í úrskurðinum að þar sem Niceair hafi ekki efnt samning sinn við viðskiptavininn. Þá verði bú Niceair tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði héraðsdóms uppkveðnum og fallist á kröfu viðskiptavinarins um endurgreiðslu 240 þúsund króna úr þrotabúi.


Tengdar fréttir

Fyrst og fremst von­brigði fyrir Norður­land

Bæjarstjóri Akureyrar segir mikil vonbrigði fyrir íbúa Norðurlands að félagið Niceair sé farið í þrot. Of litlum markaði fyrir utanlandsflug frá Akureyri sé ekki um að kenna, heldur öðrum þáttum. Gjafabréf sem fólk á inni hjá félaginu eru líklegast ónýt, að sögn formanns Neytendasamtakanna. 

„Þessum kafla er lokið hjá mér“

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Niceair, segist hafa lagt líf og sál í flugfélagið. Fall þess megi helst rekja til „sviksamlegra viðskipta erlends samstarfsaðila.“ Þessum kafla sé nú lokið.

Niceair gjald­þrota

Stjórn flugfélagsins Niceair ætlar að gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta. Stjórnin harmar aðstæðurnar en segir að allar kröfur muni fara í lögformlegan farveg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×