Englandsmeistararnir hófu titilvörnina á öruggum sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. ágúst 2023 21:01 Erling Braut Haaland skoraði tvö fyrir City. James Gill - Danehouse/Getty Images Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 3-0 útisigur er liðið heimsótti Burnley í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hélt uppteknum hætti frá síðasta tímabili og skoraði tvö fyrir gestina. Haaland kom gestunum yfir strax á fjórðu mínútu eftir undirbúning Rodri og bætti svo við öðru marki sínu á 36. mínútu þegar hann þrumaði boltanum í slána og inn eftir sendingu frá Julian Alvarez. Staðan því 2-0 í hálfleik, en Rodri var svo sjálfur á ferðinni þegar hann innsiglaði öruggan 3-0 útisigur Manchester City með marki á 75. mínútu og þar við sat. Englandsmeistararnir hefja tímabilið því á öruggum sigri og virðast til alls líklegir. Nýliðar Burnley bjuggust líklega ekki við mörgum stigum úr þessum leik og bíða betra færis þegar liðið tekur á móti Aston Villa þann 27. ágúst næstkomandi. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti