Oddafélagið kynnir tillögu að nýrri höfuðkirkju Rangæinga Kristján Már Unnarsson skrifar 4. júní 2023 21:41 Tillaga að útliti nýrrar Oddakirkju og Sæmundarstofu sem risi í Odda á Rangárvöllum. Basalt arkitektar Félag um endurreisn Odda á Rangárvöllum hefur kynnt hugmynd að útliti nýrrar höfuðkirkju Rangæinga ásamt Sæmundarstofu sem yrði fjölnota menningarhús með rými fyrir allt að fjögurhundruð manna tónleika.
Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir af hugsanlegu útliti byggingarinnar. Rifjað var upp að á Oddahátíð fyrir tveimur árum lýstu forystumenn Oddafélagsins áformum sínum um endurreisn hins forna höfuðbóls sem menningar- og fræðaseturs samhliða nýrri kirkjubyggingu. Núna hafa þeir kynnt hugmynd Basalt arkitektastofu að því hvernig slík bygging gæti litið út en taka fram að þetta sé tillaga, hugmynd sem enn sé í þróun. Byggingin myndi bæði þjóna sem ný höfuðkirkja héraðsins en einnig sem tónlistar- og menningarmiðstöð, líkt og Reykholtskirkja í Borgarfirði. Í þættinum Um land allt um Odda, sem sýndur var á Stöð 2 haustið 2021, lýstu forystumenn Oddafélagsins þeirri skoðun að þar þyrfti bæði stærri kirkju og menningarhús. „Hérna vantar í raun stærra hús, bæði til tónleikahalds og eins fyrir menningarviðburði,“ sagði Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins. Kirkjan yrði jafnframt nýtt til tónleika með sæti fyrir 400 manns. Glugginn með útsýni til fjallanna í austri yrði altaristaflan.Basalt arkitektar Hugmynd Basalt arkitekta gerir ráð fyrir kirkju sem jafnframt gæti verið tónleikasalur með fjögurhundruð manna sal sem rúmaði sinfóníuhljómsveit. Athygli vekur að glugginn er hugsaður sem altaristafla með útsýn til tignarlegra fjallanna sem blasa við af Rangárvöllum; Heklu, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls. Húsinu er einnig ætlað að hýsa setur sem kennt yrði við Sæmund fróða þar sem haldið yrði á lofti sögu Odda. Verkefnastjórinn Friðrik Erlingsson sýndi okkur fyrir tveimur árum hugsanlega staðsetningu hússins í hæfilegri fjarlægð frá gömlu kirkjunni. Staðsetning nýrrar kirkju er hugsuð suðaustan við gömlu kirkjuna.Basalt arkitektar „Ég held að allir sjái það að þetta er nauðsyn. Þetta þarf að vera til þess að viðhalda og rækta þá minningu og þá menningu sem hér var til staðar á miðöldum,“ sagði Friðrik. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá Oddahátíð sumarið 2021, þegar áformin voru kynnt, en þar kom Sinfónuhljómsveit Suðurlands fram á sínum fyrstu opinberu tónleikum: Hér má sjá fjögurra mínútna langt myndband Basalt arkitekta af nýrri Oddakirkju og Sæmundarstofu, bæði að utan og innan: Þáttinn um Odda má nálgast á streymisveitunni Stöð 2+. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins: Hér má sjá níu mínútna langt myndskeið úr þættinum, um þýðingu Odda fyrir þjóðmenningu Íslendinga: Forystumenn Oddafélagsins hyggjast gera Odda að ferðamannastað, eins og hér er lýst:
Rangárþing ytra Rangárþing eystra Þjóðkirkjan Menning Tónlist Íslensk tunga Íslensk fræði Skóla - og menntamál Ferðamennska á Íslandi Ásahreppur Arkitektúr Tengdar fréttir Vilja sjá Odda rísa á ný sem menningar- og fræðasetur Áform um endurreisn Odda á Rangárvöllum með byggingu Sæmundarstofu, nýrrar kirkju og tónlistarhúss voru kynnt á Oddahátíð um helgina samtímis því sem Sinfónuhljómsveit Suðurlands kom fram á sínum fyrstu opinberu tónleikum. 5. júlí 2021 22:36 Galdramaðurinn í Odda sem færði Íslendingum ritlistina „Skall þar hurð nærri hælum,“ er máltæki rakið til Sæmundur fróða þegar hann yfirgaf Svartaskóla í Frakklandi og járnhurðin skall svo fast aftur á hæla hans að hælbeinin særðust. 7. nóvember 2021 10:56 Hyggjast laða ferðamenn að Odda á Rangárvöllum Forystumenn Oddafélagsins, sem stefna að endurreisn Odda á Rangárvöllum sem menningar- og fræðaseturs, hyggjast jafnframt gera þetta fornfræga höfuðból að ferðamannastað. 1. nóvember 2021 22:22 Oddaverjar virðast hafa grafið gríðarstóra hella fyrir bústofninn Hellir sem fornleifafræðingar rannsaka núna í Odda á Rangárvöllum var í notkun á tíma Sæmundar fróða og er elsta staðfesta dæmi um manngerðan helli á Íslandi. Gríðarleg stærð hans vekur athygli og bendir til að Oddaverjar hafi staðið fyrir miklum búrekstri. 2. ágúst 2021 22:22 Ungir bændur nytja fornfrægt höfuðból Sá siður að presturinn í Odda á Rangárvöllum sinni jafnframt búskapnum á þessu fornfræga höfuðbóli heyrir sögunni til. „Ég er bara með einn hund,“ segir sóknarpresturinn Elína Hrund Kristjánsdóttir. 30. október 2021 13:30 Oddi á Rangárvöllum í þjóðbraut á ný með brú til Vestur-Landeyja Hið forni höfuðstaður, Oddi á Rangárvöllum, er aftur kominn í alfaraleið með nýrri brú yfir Þverá, sem styttir verulega leiðina milli Rangárvalla og Vestur-Landeyja. Brúin er 93 metra löng og reist í samstarfi sveitarfélagsins Rangárþings ytra og Vegagerðarinnar. 4. júlí 2021 21:21 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Sjá meira
Vilja sjá Odda rísa á ný sem menningar- og fræðasetur Áform um endurreisn Odda á Rangárvöllum með byggingu Sæmundarstofu, nýrrar kirkju og tónlistarhúss voru kynnt á Oddahátíð um helgina samtímis því sem Sinfónuhljómsveit Suðurlands kom fram á sínum fyrstu opinberu tónleikum. 5. júlí 2021 22:36
Galdramaðurinn í Odda sem færði Íslendingum ritlistina „Skall þar hurð nærri hælum,“ er máltæki rakið til Sæmundur fróða þegar hann yfirgaf Svartaskóla í Frakklandi og járnhurðin skall svo fast aftur á hæla hans að hælbeinin særðust. 7. nóvember 2021 10:56
Hyggjast laða ferðamenn að Odda á Rangárvöllum Forystumenn Oddafélagsins, sem stefna að endurreisn Odda á Rangárvöllum sem menningar- og fræðaseturs, hyggjast jafnframt gera þetta fornfræga höfuðból að ferðamannastað. 1. nóvember 2021 22:22
Oddaverjar virðast hafa grafið gríðarstóra hella fyrir bústofninn Hellir sem fornleifafræðingar rannsaka núna í Odda á Rangárvöllum var í notkun á tíma Sæmundar fróða og er elsta staðfesta dæmi um manngerðan helli á Íslandi. Gríðarleg stærð hans vekur athygli og bendir til að Oddaverjar hafi staðið fyrir miklum búrekstri. 2. ágúst 2021 22:22
Ungir bændur nytja fornfrægt höfuðból Sá siður að presturinn í Odda á Rangárvöllum sinni jafnframt búskapnum á þessu fornfræga höfuðbóli heyrir sögunni til. „Ég er bara með einn hund,“ segir sóknarpresturinn Elína Hrund Kristjánsdóttir. 30. október 2021 13:30
Oddi á Rangárvöllum í þjóðbraut á ný með brú til Vestur-Landeyja Hið forni höfuðstaður, Oddi á Rangárvöllum, er aftur kominn í alfaraleið með nýrri brú yfir Þverá, sem styttir verulega leiðina milli Rangárvalla og Vestur-Landeyja. Brúin er 93 metra löng og reist í samstarfi sveitarfélagsins Rangárþings ytra og Vegagerðarinnar. 4. júlí 2021 21:21