Innlent

Skipið virðist hafa siglt ó­hefð­bundna leið

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Skipið sem strandaði heitir Wilson Skaw og er áburðarflutningaskip.
Skipið sem strandaði heitir Wilson Skaw og er áburðarflutningaskip. Landhelgisgæslan

Erlent flutningaskip strandaði við Ennishöfða í Húnaflóa fyrr í dag. Að sögn upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslu virðist skipið hafa siglt óhefðbundna siglingarleið. Allar aðgerðir snúa að því að tryggja umhverfi sem best. 

„Kafarar Landhelgisgæslunnar eru í þessum töluðu orðum að kafa niður að botni skipsins til kanna hvort  skemmdir séu á búk skipsins og til að kanna hve fast skipið er,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. 

Þyrlusveitin hefur þá verið til taks. Sigmaður gæslunnar kannaði einnig ástand á áhöfninni og á skipinu sjálfu

„Um borð heilsaðist öllum vel og engum virðist hafa orðið meint af strandinu,“ segir Ásgeir.

„Við gerum ekki ráð fyrir því að losa skipið af strandstað strax, það væri fyrst í fyrramálið. Í kvöld og nótt ætlum við að koma mengunarvarnargirðingu fyrir til að tryggja að það verði enginn skaði á lífríkinu í kring. Það er enn rafmagn um borð og fer vel um áhöfnina. Við erum að meta næstu skref í samráði við umhverfisstofunun og samgöngustofu.“

Ásgeir hefur engar skýringar á strandinu en segir að svo virðist sem að skipið hafi siglt óhefðbundna leið. 

Engar vísbendingar séu um að sjór hafi komist inn í olítanka skipsins. Hins vegar sé möguleiki að sjór hafi flætt inn í jafn­væg­istanka skips­ins.

„Sem betur fer eru góðar veðuraðstæður og við viljum fara með gát og tryggja að það verði enginn skaði sem hlýst af björgunaraðgerðum. Það er ýmislegt sem getur gerst þegar svona stórt skip strandar. Vegna veðurs getum við gefið okkur rýmri tíma en ella,“ segir Ásgeir að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×