Ríkið sniðgengur börn af erlendum uppruna búsett í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 18. október 2022 09:31 Borgarstjórn mun ræða í dag um samræmda móttöku Reykjavíkurborgar á flóttafólki. Fáir sáu fyrir að ráðist yrði inni í fullvalda ríki í Evrópu á 21. öld – atburður með engum fyrirsjáanleika verður að veruleika en samt þurfa löndin í Evrópu að vera viðbúin, tilbúin kallinu þegar það kemur. Til þess höfum við laga- og regluverk sem myndar umgjörð utanum viðbrögð samfélagsins. Stundum virkar sú umgjörð vel, einsog við sáum til dæmis vel á covid tímunum. Allir lögðust á eitt, almannavarnir, sóttvarnalæknir, landlæknir vissu hvað þyrfti að gera því umgjörðin var til. Reykjavíkurborg leiðandi í þjónustu við börn af erlendum uppruna Samfélagið hefur vaxið, þroskast og auðgast - farið úr einsleitni í fjölbreytni samhliða aukinni alþjóðavæðingu og hagsæld. Á vef Hagstofu Íslands má sjá að árið 1986 var hlutfall erlendra ríkisborgara 1,5%, árið 2008 var það 7,4% og árið 2021 var það 13,9%. Sú samfélagslega breyting sem átt hefur sér stað á síðustu 36 árum hefur ekki gerst á einni nóttu.Tölulegar staðreyndir tala sínu máli þar. Frá 2015 hefur Reykjavíkurborg, undir forystu Samfylkingarinnar, jafnt og þétt unnið að því að svara breyttri þjónustuþörf innan borgarinnar með tilkomu fleiri barna af erlendum uppruna inn í skóla- og frístundastarf. Í nýlegu minnisblaði Skóla- og frístundarsviðs er ítarlega reifað hvað hefur verið gert til að veita nýja þjónustu, svara fjölbreyttri þörf og ólíkum áskorunum síðustu ár og misseri. Þannig hefur aðgerðaáætlun, sem Samfylkingin lagði til í kosningaáherslum 2018, komist til framkvæmda í gegnum meirihlutasamstarf síðasta kjörtímabils en á tímabilinu voru fjárframlög til málaflokksins hækkuð um tæpan helming eða 143 milljónir á ári eða 429 milljónir króna. Í tölulegum upplýsingum sem Skóla- og frístundasvið heldur utan um, kemur fram að börnum með annað móðurmál en íslensku fjölgað í grunnskólum Reykjavíkur á árunum 2015-2022 um 1523 einstaklinga miðað við bráðabirgðatölur fyrir árið 2022. Hefur þessi hópur farið úr 1667 börn í um 3200 börn á þessu tímabilinu. Utan Reykjavíkur búa samtals í landinu um 3600 börn með annað móðurmál en íslensku. Þannig býr tæplega helmingur barnanna af erlendum uppruna á landsvísu í Reykjavík. Reykjavíkurborg sniðgenginn með lagasetningu 2019 Þessi mikilvægi hópur, börn af erlendum uppruna i Reykjavík, var freklega sniðgenginn þegar lögum um tekjustofna sveitarfélaga var breytt árið 2019. Af einhverjum furðulegum ástæðum var Reykjavíkurborg útilokuð þegar kom að jöfnunarframlögum til reksturs grunnskóla á grundvelli ákvæðis (3. mgr 13. gr) um fjölda íbúa sem skilgreindur er 70.000 íbúa eða fleiri. Í reglugerð um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla er kveðið á um í þriðju grein um almenn framlög sjóðsins að „framlög skv. þessari grein eru ætluð öllum sveitarfélögum nema Reykjavík“. Og í immtu grein sömu reglugerðar um framlög til nýbúafræðslu segir: „Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal greiða öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg framlög til nýbúafræðslu á grunnskólastigi þar sem um slíka fræðslu er að ræða“. Þessi ákvörðun um að útiloka Reykjavíkurborg í gegnum lagasetningu og reglugerðir var tekin í sögulegri fjölgun erlendra ríkisborgara til landsins árið 2019 þegar hlutfall erlendra ríkisborgara var orðið 12.4% af heildarfjölda landsmanna. Á meðan Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fer eftir þessum ósanngjörnu lögum eru 3200 börn með annað móðurmál en íslensku búsett í Reykjavík snuðuð um 5.8 milljarða króna framlag sem ætti að renna til grunnskóla borgarinnar ef sama framlag fylgdi þeim og í alla aðra grunnskóla annars staðar á landinu, frá Garðabæ til Þórshafnar. Sú tala kemur fram í umsögn fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem sent hefur verið inn með frumvarpi til fjárlaga 2023. Við þessar aðstæður er framúrskarandi starfsfólk í leik- og grunnskólum borgarinnar og lausnamiðaðir stjórnendur, að glíma daglega við að bjarga málum, hugsa í lausnum, svo hægt sé að svara kalli um þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp í skólakerfinu með mannúð og skilning á ólíkum þörfum fólks með fjölbreyttan bakgrunn að leiðarljósi. Börn af erlendum uppruna komin á dagskrá stjórnmálanna Sautján ríkisstjórnir hafa setið við völd síðustu þrjátíu og sex árin og engin þeirra hefur sett skýrar leikreglur og umgjörð til tryggja hag barna af erlendum uppruna og foreldra þeirra þrátt fyrir að miklar efnahagslegar framfarir og sögulega kaupmáttaraukningu. Hagsæld og kaupmáttaraukning sem að hluta má þakka foreldrum þessara barna sem hingað koma til að vinna eða leita skjóls vegna stríðsátaka. Það hefur legið lengi fyrir að hingað koma margir til að vinna – margir með fjölskyldur sínar og börn. Sumir stoppa stutt á meðan aðrir festa rætur. Með aukinni hagsæld fjölgar börnum með annað móðurmál en íslensku. Núna þurfum við sem samfélag að standa saman og taka fastar utan um þennan viðkvæma hóp og fjölskyldur þeirra með því að leiðrétta fjármagn úr Jöfnunarsjóði Sveitarfélaga og festa í sessi umgjörð um málaflokkinn þannig að börnum sé ekki mismunað á grundvelli búsetu og uppruna. Tækifærið til að leiðrétta hlut Reykjavíkurborgar er NÚNA í þeirri fjárlagavinnu sem Alþingi stendur frammi fyrir næstu vikurnar, það verður að endurskoða úthlutunarreglur Jöfnunarsjóðs í gegnum lög um tekjustofna Sveitarfélaga og tryggja þeim 3200 börnum sem er mismunað á grundvelli búsetu sína hlutdeild í samneyslunni. Skiptir engu um hvort um er að ræða landlaust flóttafólk eða börn sem fylgja foreldrum sínum eftir. Við þurfum að tryggja jöfn tækifæri fyrir öll börn sama hvaðan þau koma, hvar þau búa eða hvert móðurmálið þeirra er. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður íbúaráðsins í Breiðholti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Björg Sigurðardóttir Reykjavík Borgarstjórn Innflytjendamál Samfylkingin Börn og uppeldi Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun