Innlent

Skoða flutning Hagskælinga í Korpu­skóla

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Hluti nemenda Hagaskóla er nú í Ármúla 30. 
Hluti nemenda Hagaskóla er nú í Ármúla 30.  Já.is

Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. 

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.

Hagskælingar voru fluttir í húsnæðið í Ármúla í upphafi árs eftir að upp komst um myglu í einni álmu skólans síðasta vetur. Nýverið hafi þó komið í ljós að brunavörnum væri ábótavant í Ármúlanum en til stóð að nemendur yrðu þar fram yfir áramót.

Fulltrúar Reykjavíkurborgar, þar á meðal frá skóla- og frístundasviðið og umhverfis og skipulagssviði, funduðu með skólaráði Hagaskóla, foreldrafélagi og trúnaðarmönnum starfsfólks í vikunni þar sem fulltrúar slökkviliðsins kynntu niðurstöður sínar.

Niðurstaðan fundarins var að skoða annað hvort flutning í Korpuskóla eða að húsnæðið í Ármúla yrði tvísetið, líkt og staðan var í gær. 

Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, segir í samtali við Morgunblaðið segir flutning í Korpuskóla síðri kostinn en að ákveðin vandamál fylgi einnig seinni valkostinum, enda hafi það í för með sér skerðingu á viðverutíma nemenda þar sem hópurinn er tvískiptur.

„Aðalvandamálið í Ármúla er að það eru of margir nemendur miðað við rýmingarleiðir, sérstaklega á þriðju hæðinni og hluta annarrar hæðar. Það er mikið keppikefli hjá skólanum að nemendahópurinn sé ekki margskiptur,“ sagði Helgi en ákvörðun verði vonandi tekin bráðlega.

Borgarráð samþykkti í sumar tillögu um stækkun á Hagaskóla samhliða endurnýjun á húsnæði skólans. Töluverð uppbygging er framundan í skólahverfinu og er búist við áframhaldandi fjölgun nemenda í skólanum á næstu árum. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár.


Tengdar fréttir

Hagskælingar fluttir í Ármúla

Miklar skerðingar eru á skólastarfi Hagaskóla vegna myglu sem fannst í einni álmu skólans í vetur. Það mun vera áfram það sem eftir er skólaárs og munu níundu bekkingar skólans sækja námið í Ármúla.

Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla

Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega.

Tvö hundruð Hagskælingar nema á Hótel Sögu

Reykjavíkurborg hefur samið við eigendur Hótel Sögu um að leigja af þeim um 1100 fermetra á 2. hæð hótelsins auk aðgangs að sameign. Þar munu um tvö hundruð nemendur í 8. bekk Hagaskóla nema á meðan framkvæmdir fara fram í norðausturálmu skólans hvar myglu hefur orðið vart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×