Innlent

Á­kærður fyrir að stela 34 símum og greiðslu­korti fjór­tán ára stúlku

Bjarki Sigurðsson skrifar
Flestum símunum stal maðurinn úr Laugardalshöll, alls tíu talsins.
Flestum símunum stal maðurinn úr Laugardalshöll, alls tíu talsins. Vísir/Vilhelm

Rétt rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir að stela samtals 34 farsímum og öðru góssi, þar á meðal greiðslukorti 14 ára stúlku. Flest brotin voru framin í íþróttaklefum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

Ákæran er í alls ellefu liðum og fjalla flestir þeirra um símaþjófnað. Samtals eru þetta 34 símar, flestir þeirra iPhone eða Samsung Galaxy. Þjófnaðirnir áttu sér allir stað á ellefu daga tímabili en ekki hefur tekist að birta manninum ákæruna og hún því birt í Lögbirtingablaðinu.

Notaði greiðslukortið í Háspennu

Maðurinn stal þremur símum úr búningsklefa í Skautahöllinni, tveimur símum úr Íþróttamiðstöð Breiðabliks, þremur símum úr Ásgarði í Garðabæ, tveimur símum úr íþróttamiðstöð Þróttar, tveimur símum úr Dalskóla, tíu símum úr Laugardalshöll, átta símum og greiðslukorti úr íþróttamiðstöð Gróttu og fjórum símum og fartölvu úr Valsheimilinu.

Ásamt félaga sínum notaði hann greiðslukortið sem hann stal úr íþróttamiðstöð Gróttu til að taka út tíu þúsund krónur í Háspennu við Rauðarárstíg.

Ók án ökuréttinda

Ásamt því að stela símunum stal hann Airpods-heyrnartólum, Moncler-úlpu og reiðufé. Þá er hann ákærður fyrir að hafa ekið bifreið án ökuréttinda og án öryggisbeltis eftir Kringlumýrarbraut í átt að Hafnarfjarðarvegi uns lögregla stöðvaði akstur hans við Hamraborg í Kópavogi.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttinda. Móðir eiganda greiðslukortsins gerir einkaréttarkröfu upp á tæplega sextíu þúsund krónur auk vaxta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×