Innlent

Gylfi Þór leiðir teymið sem aðstoðar flóttafólk frá Úkraínu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gylfi Þór var ekki lengi án vinnu eftir lokun farsóttarhúsanna.
Gylfi Þór var ekki lengi án vinnu eftir lokun farsóttarhúsanna. Vísir/Vilhelm

Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsanna, hefur verið ráðinn til þess að stýra því stóra verkefni að skipuleggja komu flóttafólks frá Úkraínu til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mun skipa sérstakt aðgerðarteymi vegna komu einstaklinga á flótta frá Úkraínu og mun teymið fara með yfirstjórn aðgerða og vinna að skipulagningu á móttöku flóttafólks frá landinu.

Í hópnum verða fulltrúar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, forsætisráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Þá verður óskað eftir fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til þátttöku í teyminu og að fulltrúi flóttamannanefndar eigi þar einnig sæti. Stofnanir ráðuneytisins munu taka þátt í starfinu eftir þörfum.

Hefur félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ráðið Gylfa Þór sem aðgerðarstjóra teymisins til að leiða þau verkefni sem við blasa og tengja saman stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki sem lagt geta málinu lið.

Ráðgert er að opna síðar í dag sameiginlega rafræna gátt fyrir tilboð um aðstoð sem berast víða að svo tryggja megi yfirsýn og meta þörf og eftirspurn. Sérstaklega á það við um tilboð um húsnæði fyrir flóttafólkið til skemmri eða lengri tíma.


Tengdar fréttir

Far­sóttar­húsunum lokað og Gylfi Þór leitar nýrra verk­efna

Farsóttarhúsum Rauða krossins, sem hýst hafa Covid-smitaða einstaklinga sem ekki hafa getað einangrað sig annars staðar, verður lokað í lok marsmánaðar. Fráfarandi forstöðumaður segist því þurfa að fara að finna sér eitthvað annað að gera.

Gylfi bíður eftir uppsögn

Gylfi Þór Þorsteinsson segir að þrátt fyrir að áfram sé töluvert álag á farsóttahúsin þá búist hann við að þeim verði lokað fyrr en síðar. Starfsfólk sé þegar farið að svipast um eftir öðrum störfum. Sjálfur hefur Gylfi verið áberandi í heimsfaraldrinum sem forstöðumaður farsóttahúsanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×