LeBron talaði við ungan sjálfan sig í einni flottustu Super Bowl auglýsingunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2022 15:01 Hinn 37 ára gamli LeBron James sést hér tala við sjálfan sig þegar hann var aðeins átján ára gamall. Skjámynd/Crypto Körfuboltastjarnan LeBron James var ekki aðeins meðal áhorfenda á Super Bowl í nótt því hann var einnig í aðalhlutverki í einni auglýsingunni.
Auglýsingin með James er mjög vel heppnuð og frábært dæmi um það sem hægt er að gera vel með nútíma tækni. LeBron James er nefnilega tímaferðalangur í þessari auglýsingu frá Crypto. Nútíma James hefur þar ferðast aftur til ársins 2003 til að hitta ungan sjálfan sig þegar hann var átján ára og átti eftir að stíga sín fyrstu skref í NBA. Hér fyrir neðan má sjá þessa auglýsingu þar sem hinn ungi LeBron er að forvitnast um framtíðina og að leita eftir góðum ráðum frá eldri og mun reyndari útgáfu af sjálfum sér. James fór kom beint inn í NBA-deildina úr menntaskóla og sjaldan hafa væntingarnar verið hærri hjá einum leikmanni. Hann stóðst þær og gott betur enda talinn einn allra besti leikmaður sem hefur spilað i NBA-deildinni. James hefur fjórum sinnum orðið meistari og er á góðri leið með að verða stigahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi. Hann hefur fjórum sinnum verið kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar og þrettán sinnum komið í fyrsta úrvalslið deildarinnar. Afrekaskráin er löng og söguleg og James mun eiga mörg met þegar ferillinn er á enda. Hann er hins vegar ekki að fara að enda nærri því strax þótt að hann sé orðinn 37 ára gamall enda er kappinn með 29,0 stig, 7,9 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali með Los Angeles Lakers á þessu tímabili.
NBA Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Sjá meira