Viðskipti innlent

Icelandair stefnir við­halds­fyrir­tæki vegna róar af rangri stærð

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lendingarbúnaðurinn gaf sig þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli.
Lendingarbúnaðurinn gaf sig þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli. Mynd/RNSA

Icelandair hefur stefnt kanadíska flugvélaviðhaldsfyrirtækinu Kelowna Flighcraft á þeim grundvelli að það hafi klúðrað viðhaldi á lendingarbúnaði Boeing-757 þotu félagsins, með þeim afleiðingum að vélinni hlekktist á í lendingu á Keflavíkurflugvelli fyrir tveimur árum.

Kandadíska ríkisútvarpið greinir frá og vísar í dómskjöl frá Hæstarétti Bresku-Kólumbíu ríkis í Kanada. Þar kemur fram að Icelandair krefjist þess að fá skaðabætur sem nemi kostnaði vegna skemmda á vélinni auk tekna sem glötuðust vegna atviksins.

160 farþegar og sex manna áhöfn voru um borð í Boeing 757-vélinni þegar hjólabúnaðurinn hægra megin gaf sig þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli þann 7. febrúar 2020. Engin slys urðu á fólki.

Telja kanadíska fyrirtækið hafa sýnt af sér vanrækslu

Rannsóknarnefnd samgönguslysa skilgreindi atvikið sem flugslys en mildi þykir að flugmönnum vélarinnar skyldi hafa tekist að halda vélinni á flugbrautinni, eftir að hjólabúnaðurinn gaf sig.

Við rannsókn á vettvangi kom í ljós að ró vantaði í lendingarbúnaðinn, ásamt fylgihlut. Þessir hlutir fundust á flugbrautinni nálægt þeim stað þar sem vélin snerti brautina í lendingu.

Við rannsókn á rónni kom í ljós að hún var of stór til að halda nægilega vel skrúfunni sem gekk inn í hana.

Samkvæmt frétt CBC heldur Icelandair því fram að flugvirkjar Kelowna Flightcraft hafi notast við ranga tegund af ró þegar þeir sinntu viðhaldi vélarinnar undir lok ársins 2019.

„Icelandair heldur því fram að lendingarbúnaður vélarinnar hafi gefið sig vegna vanrækslu eða brota á samningi við Kelowna Flightcraft,“ vitnar CBC í stefnuna.

Flugvélin var nýkomin úr stórskoðun í Kanada, svokallaðri C-skoðun, þar sem skipt var um lendingarbúnað. Lendingarstellið sem sett var á hana kom frá fyrirtæki á Flórída.

Halda því fram að flugvirkjar hafi notast við tímabundna flutningsró

Samkvæmt frétt CBC heldue Icelandair því fram í stefnunni að lendingarbúnaðurinn hafi verið sendur frá Flóría til Kanada. Róin stóra sem gaf sig hafi aðeins verið sett á lendingarbúnaðinn til að varna því að hann myndi skemmast í flutningi til Kanada

Róin mældist 1,617 tommur að innanmáli.Mynd/RNSA

Icelandair heldur því fram að Kelowna Flightcraft hafi ekki notað þá ró sem átti að nota heldur hafi flugvirkjar þeirra hert flutningsrónna, þrátt fyrir að að hún hafi verið of stór og merkt með viðvörunarmiða.

Í fréttinni kemur einnig fram að Kelowna hafi ekki svarað ásökunum Icelandair. Fyrirtækið sendi þó CBC stutta yfirlýsingu þar sem fram kemur að Icelandair sé mikilvægur viðskipavinur félagsins, og markmið fyrirtækisins sé að veita íslenska flugfélaginu, sem og öðrum félögum, framúrskarandi þjónustu.

Boltinn sem gekk á móti rónni mældist að utanmáli 1,622 tommur, og var því lítið hald í rónni. Til að hann héldist nægilega fastur hefði róin að innanmáli þurft að vera á bilinu 1,5439 til 1,5539 tommur.Mynd/RNSA

Þar kemur einnig fram að tryggingafélag fyrirtækisins sé að skoða málið og að ekki sé tímabært að tjá sig um það frekar.


Tengdar fréttir

„Lykilatriði að enginn slasaðist“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir það fyrir öllu að engin slys hafi orðið á fólki þegar lendingarbúnaður flugvélar félagsins brotnaði skömmu eftir lendingu.

Brotlending þotu Icelandair núna skilgreind sem flugslys

Mildi þykir að flugmönnunum skyldi takast að halda flugvélinni á brautinni. Rannsóknin beinist að því hvernig staðið var að endurnýjun lendingarbúnaðar, sem skipt var um aðeins einum mánuði áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×