Atvinnulíf

Starfs­fólk orðið svo þreytt á enda­lausum breytingum – ekki endi­lega vinnunni sjálfri

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Niðurstöður nýlegrar alþjóðlegrar könnunar benda til þess að fólk sé orðið dauðþreytt á endalausum breytingum í vinnunni. Sem er ekki gott með tilliti til þeirra breytinga sem atvinnulífið er og mun þurfa að fara í gegnum næstu misseri.
Niðurstöður nýlegrar alþjóðlegrar könnunar benda til þess að fólk sé orðið dauðþreytt á endalausum breytingum í vinnunni. Sem er ekki gott með tilliti til þeirra breytinga sem atvinnulífið er og mun þurfa að fara í gegnum næstu misseri. Vísir/Vilhelm

Það hrýs mörgum hugur við tímanum sem fram undan er. Ekki aðeins fyrirséðan hagræðingartíma í kjölfar kólnunar eða innleiðingar á gervigreind og aukinni sjálfvirknivæðingu.

Nei, fólk er líka að sjá fyrir sér tíma breytinga í vinnunni.

Enn einu sinni!

Því, guð minn góður: Hversu oft getum við farið í gegnum breytingar á einum vinnustað?

Nýtt skipurit. Nýir verkferlar. Ný stefna. Nýir stjórnendur. Og þegar loksins er farið að ganga vel með síðustu breytingar er boðað til fundar um þær næstu.

Hljómar kunnuglega, ekki satt?

Svo fyrirséðar eru breytingarnar fram undan að sumir tala um að breytingastjórnun sé í rauninni komin til að vera; tækninýjungarnar verða einfaldlega svo miklar næstu árin - svo ekki sé talað um uppsagnirnar sem eru í gangi núna og verða áfram.

Vinnustaðir þurfa hins vegar að velta breytingunum fyrir sér sérstaklega. 

Ekki síst með tilliti til líðan starfsfólks eða ávinnings.

Því þetta er staðreynd:

Starfsfólk er orðið dauðþreytt á þessum endalausu breytingum. Þótt það sé í raun ánægt með starfið sitt og vinnustaðinn.

Nýleg alþjóðleg könnun Sia – sem náði til 1.450 starfsmanna og stjórnenda víða um heim – sýnir að 85% svarenda voru að ganga í gegnum að minnsta kosti eina breytingu á sínum vinnustað þegar könnunin fór fram.

Um 30% upplifðu þrjár til fimm breytingar samtímis.

Og 41% töldu að vinnustaðurinn þeirra væri að reyna að gera allt í einu.

Ný alþjóðleg könnun Deloitte meðal 1.000 stjórnenda sem höfðu stýrt umfangsmiklum breytingaverkefnum sýnir hins vegar að 70% stjórnenda töldu síðasta breytingaverkefni ekki hafa skilað þeim viðskiptalega ávinningi sem að var stefnt.

Það má því velta fyrir sér:

Hvaða breytingar eru nauðsynlegar og hverjar ekki? Því stundum gæti skynsamlegasta breytingin á vinnustaðnum einfaldlega verið að hætta að breyta svona mörgu.


Tengdar fréttir

Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu?

Þegar kemur að umræðu um krísustjórnun eða breytingastjórnun komast fáir með tærnar þar sem Gylfi Dalmann Aðalsteinsson hefur hælana. Enda prófessor í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands, hokinn af reynslu og með einstaklega góða yfirsýn yfir þær hæðir og lægðir sem íslenskt atvinnulíf hefur farið í gegnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×