Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. nóvember 2026 10:57 Þóroddur Ottesen er forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Hann lætur af störfum þann 15. janúar og tekur þá við öðru starfi. Sigurjón Ólason Þóroddur Ottesen Arnarson forstjóri og Sigurður Ragnarsson stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka láta senn af störfum hjá verktakafyrirtækinu eftir margra ára starf. Við báðum hlutverkum tekur framkvæmdastjóri hjá móðurfélagi Íslenskra aðalverktaka.
Þóroddur staðfestir í samtali við Vísi að breytingarnar hafi verið tilkynntar starfsmönnum ÍAV fyrir helgi. Sigurður Ragnarsson hefur verið lengi í bygginga- og verktakabransanum. Hann kveður nú ÍAV eftir fimmtán ára starf. Þóroddur hefur ráðið sig til starfa hjá Stólpa að því er fram kemur í tilkynningu en mun stýra Íslenskum aðalverktökum til 15. janúar þegar Daniel Grad, forstjóri Marti AS í Noregi, tekur við tímabundið en til stendur að ráða í framhaldinu annan forstjóra. Grad, sem er 35 ára Þjóðverji, mun sömuleiðis taka við sem stjórnarformaður ÍAV og verður því í einhvern tíma starfandi stjórnarformaður og forstjóri. Ljóst er að með brotthvarfi Þórodds og Sigurðar renna upp mikil tímamót hjá ÍAV. Sigurður var forstjóri til ársins 2021 þegar Þóroddur, sem þá starfaði sem fjármálastjóri, tók við starfinu og Sigurður varð stjórnarformaður. Íslenskir aðalverktakar hafa frá árinu 2010 verið í eigu Marti Contractors Ltd. í Sviss. Marti AS í Noregi, þaðan sem Grad kemur, er því systurfélag Íslenskra aðalverktaka í eigu svissneska móðurfélagsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Grad verið á Íslandi undanfarna mánuði að taka út rekstur Íslenskra aðalverktaka. Meðal þess sem hann hefur lagt áherslu á er samtöl við millistjórnendur og starfsmenn hjá fyrirtækinu til að rýna í reksturinn. Daniel Grad verður í lykilstöðu hjá ÍAV sem bæði forstjóri og stjórnarformaður frá og með 15. janúar. Til stendur að ráða annan forstjóra á nýju ári. Rúmlega tuttugu var sagt upp hjá fyrirtækinu í september og þá sagði Þóroddur forstjóri að fyrirtækið hefði verið að fækka starfsmönnum töluvert, bæði vegna þess að minna væri að gera en einnig vegna endurskipulagningar í rekstri. Þá kom fram að um tíu prósentum starfsmanna hefði verið sagt upp og samkvæmt því starfa í dag um 180 hjá fyrirtækinu. Íslenskir aðalverktakar voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að frá þeim tíma til dagsins í dag hafi orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir. „ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerð, jarðvinnu eða gatnagerð.“ ÍAV hf. er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðs vegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar. Fréttin var uppfærð með þeim tíðindum að Þóroddur hefði ráðið sig sem forstjóri Stólpa. Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Þóroddur Ottesen Arnarson hefur verið ráðinn forstjóri Stólpa, dótturfélags Styrkás hf. Hann kemur til félagsins frá ÍAV hf., þar sem hann hefur starfað í rúm 30 ár, síðast sem forstjóri. Þóroddur hefur störf 15.janúar 2027. Stólpi er leiðandi þjónustuaðili á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi á Íslandi. Félagið býður húseiningar, íbúðareiningar, gáma og geymslulausnir til sölu og leigu og leggur áherslu á hátt þjónustustig og trausta afhendingu. Þá rekur Stólpi smiðjustarfsemi þar sem félagið annast m.a. gáma-, kæli- og vagnaviðgerðaþjónustu og trésmíðaþjónustu. Með ráðningu Þórodds fær Stólpi til liðs við sig stjórnanda með langa reynslu af rekstri og fjármálum í verktakastarfsemi og mannvirkjagerð.Áður en Þóroddur tók við sem forstjóri ÍAV árið 2021 var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins. Hann er með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á reikningshald og fjármál.Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás:„Með öflugri vöruþróun og uppbyggingu sérfræðikunnáttu hefur Stólpi orðið leiðandi á markaði fyrir húseiningar, bæði fyrir atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði. Meðal viðskiptavina Stólpa eru ríki og sveitarfélög og fyrirtæki í þeirra eigu ásamt flestum verktakafyrirtækjum landsins. Þóroddur hefur leitt rótgróið verktakafyrirtæki og þekkir því vel þarfir viðskiptavina okkar. Ég býð hann velkominn til starfa um leið og ég þakka Berki Grímssyni, fráfarandi forstjóra, kærlega fyrir hans störf í þágu félagsins. Það er styrkur fyrir Stólpa að Börkur mun áfram starfa með félaginu að stórum verkefnum sem fram undan eru í húseiningum.“Þóroddur Ottesen Arnarson:„Stólpi hefur sterka stöðu á sínum markaði og öflugt starfsfólk. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins og sé mikil sóknarfæri bæði á sviði húseininga og í annarri starfsemi félagsins. .“Um Styrkás hf.Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta, sem saman mynda samstæðu félagsins.Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Markmið félagsins er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti á kjarnasviðunum: orka og efnavara, tæki og búnaður, eignaumsýsla og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónusta. Dótturfélagið Styrkás Fasteignir heldur utan um fasteignir og lóðir samstæðunnar, samtals um 3 þúsund fermetra fasteignir og 68 þúsund fermetra lóðir. Styrkás hefur jafnframt undirritað samning um kaup á Malbikstöðinni ehf. með hefðbundnum fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlits. Að loknum kaupunum verður til fimmta kjarnasvið Styrkás.Rekstrarhagnaður Styrkás samstæðunnar eftir afskriftir (EBIT) er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026. Stjórn Styrkás hefur hafið undirbúning fyrir skráningu hlutabréfa félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi, með það að markmiði að þau verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.
Vistaskipti Byggingariðnaður Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira