Fótbolti

Lazio vann mikilvægan sigur í baráttunni um Evrópusæti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Laxio tók þrjú mikilvæg stig í kvöld.
Laxio tók þrjú mikilvæg stig í kvöld. Gabriele Maltinti/Getty Images

Lazio vann virkilega mikilvægan útisigur er liðið heimsótti Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 3-0, en bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti.

Enn var markalaust þegar flautað var til hálfleiks, en Sergej Milinkovic-Savic kom Lazio yfir á 52. mínútu, áður en Ciro Immobile tvöfaldaði forystu gestanna tuttugu mínútum fyrir leikslok. 

Cristiano Biraghi varð svo fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 81. mínútu og tryggja Lazio um leið öruggan sigur.

Lucas Torreira nældi sér í sitt annað gula spjald í liði Fiorentina stuttu fyrir leikslok og þar með rautt. Heimamenn þurftu því að spila seinustu mínútur leiksins manni færri, en það breytti þó engu um niðurstöðu leiksins.

Lokatölur urðu því 3-0, Lazio í vil, en liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar með 39 stig eftir 24 leiki, fjórum stigum á eftir Atalanta sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu.

Fiorentina situr hins vegar í áttunda sæti deildarinnar með 36 stig eftir 23 leiki.

Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×