Erlent

Leyfir sér að vona að hið dramatíska „finale“ sé handan við hornið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Helgi Jóhannsson hefur verið svæfingalæknir á St. Mary's háskólasjúkrahúsinu í Lundúnum síðan 2007. Hann hefur reglulega verið kallaður til starfa á gjörgæslu vegna kórónuveirufaraldursins.
Helgi Jóhannsson hefur verið svæfingalæknir á St. Mary's háskólasjúkrahúsinu í Lundúnum síðan 2007. Hann hefur reglulega verið kallaður til starfa á gjörgæslu vegna kórónuveirufaraldursins. úr einkasafni

Íslenskur læknir sem starfar á sjúkrahúsi í Lundúnum segir stöðuna ágæta á spítalanum, þrátt fyrir uppgang ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og tiltölulega vægar samkomutakmarkanir. Hann bindur vonir við að dramtískur endapunktur faraldursins sé í nánd.

Ómíkron er fyrir löngu orðið ráðandi á Bretlandseyjum eins og víða annars staðar - og smittölur í hæstu hæðum síðustu daga. Í fyrradag var greint frá því að síðan faraldurinn hófst hefðu yfir 150 þúsund nú látist af Covid-19 í Bretlandi innan 28 daga frá jákvæðri niðurstöðu. 

Erfitt að horfa á fólk deyja

Helgi Jóhannsson, íslenskur svæfingalæknir sem starfað hefur á St. Mary's háskólasjúkrahúsinu í Lundúnum síðan árið 2007, segir baráttuna hafa verið langerfiðasta í blábyrjun faraldurs. Sem betur fer hafi engir samstarfsmenn hans látist.

„En það voru margir mjög veikir og margir inni á spítala. En svo var rosalega erfitt að sjá fólk á mínum aldri og yngra en ég sem fékk sýkinguna og bara dó fyrir framan okkur.“

Helgi telur íslensk stjórnvöld hafa haldið talsvert betur á spöðunum en þau bresku í baráttunni við faraldurinn. Gripið hafi verið of seint til aðgerða í fyrri bylgjum - en nú séu mjög vægar aðgerðir í gangi í Englandi, sem hann voni að dugi.

„En fólk hefur misst traustið á yfirvöldum, þannig að ef við hefðum lokað eitthvað í desember eða núna í janúar held ég að þjóðin hefði ekki tekið mark á því,“ segir Helgi.

Leyfir sér að vera svolítið hugrakkur

Sjálfur fékk Helgi veiruna strax í mars 2020, með fyrstu mönnum semsagt. Hann er nú þríbólusettur, nokkuð sem hann hvetur alla til að gera, en fékk þó ómíkron nú rétt fyrir jól - og fimmtugsafmælisferð til Mexíkó varð þar með að engu. Hann segir að enn sé vissulega álag á spítalanum en staðan nú sé allt önnur en áður. Fólk verði hreinlega ekki jafnveikt.

„Það er voðalega mikið af starfsfólki í sýkingu eins og er, þannig að það er eiginlega versta vandamálið okkar,“ segir Helgi.

„Ég ætla að vera svolítið hugrakkur núna. Ég er eiginlega svolítið bjartsýnn að þetta sé svolítið dramtískt „finale“ hjá okkur, og flugeldarnir og allt saman. Og hlutirnir verða erfiðir nú í janúar en svo held ég að þeir batni núna í febrúar og mars.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×