Heimsmeistararnir björguðu sér fyrir horn Sindri Sverrisson skrifar 9. desember 2021 16:20 Bo van Wetering skoraði sex mörk fyrir Holland í dag. Getty/Henk Seppen Heimsmeistarar Hollands sluppu heldur betur með skrekkinn þegar liðið vann Rúmeníu, 31-30, á HM í handbolta kvenna á Spáni. Rúmenar gerðu slæm mistök á lokamínútunni.
Holland komst sex mörkum yfir í leiknum en Rúmeníu tókst að vinna sig inn í leikinn og jafna metin. Angela Malestein kom Hollandi svo yfir með skoti í stöng og inn þegar tæp mínúta var eftir. Rúmenar fengu gott færi til að jafna metin en Tess Wester varði frá Lauru Moisa. Þá var enn hálf mínúta eftir en engin í rúmenska liðinu virtist átta sig á því og liðið bakkaði allt að eigin vítateig. Holland gat því spilað boltanum rólega á milli sín og eytt tímanum, áður en liðið tók svo leikhlé þegar átta sekúndur voru eftir. Þá fyrst virtust þjálfari og leikmenn Rúmena átta sig á stöðunni en það var of seint og leiktíminn rann út. Þetta var fyrsti leikurinn í milliriðli 2 þar sem Holland er nú með 5 stig en Rúmenía 2. Noregur, sem mætir Púertó Ríkó á eftir, er með 4 stig og Svíþjóð, sem mætir Kasakstan í kvöld, er með 3 stig. Púertó Ríkó og Kasakstan eru án stiga. Jafnt hjá Rússum og Slóvenum Milliriðill 1 hófst einnig á háspennuleik sem lauk með 26-26 jafntefli Rússlands og Slóveníu. Júlía Markova skoraði jöfnunarmark fyrir Rússa þegar fimm sekúndur voru eftir. Rússar eru því efstir í milliriðli 1 með 5 stig en Slóvenía er með 3 stig. Frakkland er með 4 stig, Serbía 2 og Pólland og Svartfjallaland án stiga. Í dag mætast Svartfjallaland og Serbía, og Frakkland og Pólland.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Enski boltinn Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Enski boltinn Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Fótbolti Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Fótbolti ÍBV - KR | Vesturbæingar í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ Sjá meira