Innlent

Kvöldið og nóttin fjölbreytt og annasöm hjá lögreglu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það sem að neðan er talið er aðeins hluti þeirra verkefna sem lögregla sinnti í gærkvöldi og nótt.
Það sem að neðan er talið er aðeins hluti þeirra verkefna sem lögregla sinnti í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölda fjölbreyttra mála í gærkvöldi og nótt og fór meðal annars í tvær húsleitir vegna fíkniefna. Þá fór hún tvívegis í útkall vegna hávaðakvartana og aðstoðaði vegna slysa og umferðaróhappa.

Fyrir kvöldmat var lögregla kölluð til vegna tveggja manna sem höfðu verið með ítrekað ónæði í póstnúmerinu 104 sökum ölvunar. Var þeim vísað á brott. Klukkustund síðar barst tilkynning um menn í annarlegu ástandi við verslunarmiðstöð en þeir reyndust farnir á brott þegar lögreglu bar að garði. Var líklega um sömu menn að ræða.

Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um þjófnað í verslun en við leit komu fíkniefni í ljós. Skömmu síðar var annar einstaklingur handtekinn vegna gruns um vörslu fíkniefna. Farið var í húsleit í kjölfarið þar sem meiri fíkniefni fundust.

Rétt fyrir klukkan 20 var tilkynnt um par með ógnandi hegðun en það var farið á brott þegar lögreglu bar að. Þá var óskað aðstoðar lögreglu vegna manna sem voru sagðir hafa sett brunaviðvörunarkerfi í gang með kannabisreykingum í bílakjallara en þeir reyndust sömuleiðis farnir sína leið þegar lögregla mætti á staðinn.

Rétt fyrir klukkan 21 rannsakaði lögregla sölu og dreifingu fíkniefna. Húsleit var framkvæmd og málið er í rannsókn. Lögregla rannsakaði einnig meinta líkamsárás og vopnalagabrot en barnavernd og foreldrar voru viðstaddir þar sem þeir sem áttu aðild að málinu voru ekki orðnir 18 ára.

Í nótt barst lögreglu svo tilkynning um menn sem voru að hringja dyrabjöllum og vekja fólk. Voru þeir farnir þegar lögregu bar að. Þá gaf einn sig fram á lögreglustöð til að tilkynna líkamsárás og hótanir. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×