Unnu nágranna sína í fyrsta sinn í 93 mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2021 13:00 Njarðvíkurstelpurnar fagna sigri í klefanum eftir leik. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur Njarðvíkurkonur eru á toppnum í Subway-deild kvenna eftir sjö stiga sigur á nágrönnum sínum í Keflavík í Ljónagryfjunni í gærkvöldi.
Sigurinn, sá sjötti í sjö leikjum hjá nýliðunum, færði liðinu ekki aðeins toppsæti deildarinnar, heldur var þetta líka langþráður sigur á nágrönnunum úr Keflavík. Aliyah Collier var frábær í leiknum með 27 stig, 16 fráköst, 10 fiskaðar villur og 5 stoðsendingar. Diane Diéné skoraði 19 stig og Lavinia Da Silva var með 14 stig, 12 fráköst og 5 stoðsendingar. Kamilla Sól Viktorsdóttir var stigahæst íslensku stelpnanna með 8 stig. Njarðvík hafði ekki unnið Keflavík í efstu deild kvenna síðan 22. janúar 2014 eða næstum því átta ár. Njarðvík vann Keflavík í Keflavík þennan janúardag fyrir 93 mánuðum síðan en frá þeim leik höfðu Keflavíkurkonur unnið Njarðvík níu sinnum í röð í úrvalsdeild kvenna. Einn leikmaður Keflavíkur í gær, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, tók þátt í þeim leik en þá var hún leikmaður Njarðvíkurliðsins. Þar sem síðasti sigur Njarðvíkur á Keflavík var á Sunnubrautinni þarf að fara enn lengra aftur til að finna Njarðvíkursigur á móti Keflavík í Ljónagryfjunni. Sigurinn í Ljónagryfjunni í gær var fyrsti heimasigur Njarðvíkurkvenna á Keflavík í efstu deild síðan 4. desember 2011 eða í næstum því heilan áratug. Njarðvík hafði fyrir leikinn tapað níu heimaleikjum í röð á móti Keflavík.
Subway-deild kvenna UMF Njarðvík Keflavík ÍF Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Sjá meira