Fótbolti

Berglind Björg og Hlín skiptu stigunum á milli sín

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði tæpar 80 mínútur fyrir Hammarby í dag.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði tæpar 80 mínútur fyrir Hammarby í dag. Vísir/Vilhelm

Berglind Björg Þrovaldsdóttir var í byrjunarliði Hammarby og Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður fyrir Piteå þegar að liðin gerðu 1-1 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Cajsa Hedlund kom gestunum í Pteå í 1-0 forystu eftir rétt rúmlega hálftíma leik, og þannig var staðan þegar að flautað var til hálfleiks.

Emilia Larsson jafnaði metin fyrir heimakonur á 77. mínútu leiksins, og þar við sat.

Hammarby situr í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig eftir 18 umferðir, en Piteå situr í því tíunda með níu stigum minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×