Fótbolti

Jón Dagur gæti orðið liðsfélagi Elíasar Más í Frakklandi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson hefur leikið með AGF í Danmörku frá árinu 2019.
Jón Dagur Þorsteinsson hefur leikið með AGF í Danmörku frá árinu 2019. Jan Christensen / FrontzoneSport via Getty Images

Jón Dagur Þorsteinsson, leikamður AGF í Danmörku, gæti gengið til liðs við franska B-deildarliðið Nimes á næstu dögum.

Danski miðilli BT greindi frá því í gær að franska liðið hafi boðið 700.000 evrur í íslenska landsliðsmanninn, en Nimes féll úr frönsku úrvalsdeildinni á seinasta tímabili og stefnir beint aftur upp. Elías Már Ómarsson gekk til liðs við Nimes frá hollenska liðinu Excelcior fyrr í sumar.

Jón Dagur hefur verið á mála hjá AGF síðan árið 2019, en hann hefur skorað 16 mörk og lagt upp önnur sex í dönsku úrvalsdeildinni.

Þar áður var hann hjá enska félaginu Fulham, en hann á einnig að baki níu A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur hann skorað í þeim eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×