Fótbolti

Aron Elís og félagar komu til baka og sóttu stig

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Aron Elís var í byrjunarliði OB í dag.
Aron Elís var í byrjunarliði OB í dag. Lars Ronbog / FrontZoneSport via Getty Images

Aron Elís Þrándarson var í byrjunarliði OB sem tók á móti Brøndby í dönsku deildinni í knattspyrnu. Lokatölur 2-2, en Aron Elís og félagar voru 2-0 undir þegar flautað var til hálfleiks.

Mikael Uhre kom gestunum yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik eftir stoðsendingu frá Josip Radosevic. Uhre var svo aftur á ferðinni tveim mínútum fyrir hálfleik þegar hann tvöfaldaði forystu gestanna.

Emmanuel Sabbi minnkaði muninn fyri OB á 55. mínútu en það var Mart Lieder sem tryggði OB stig þegar hann jafnaði metin rúmum fimm mínútum fyrir leikslok.

OB situr í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig eftir sex leiki. Brøndby hefur ekki enn unni leik, en er þó aðeins einu sæti neðar með fjögur stig eftir fjögur jafntefli og tvö töp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×