Viðskipti innlent

Milljarðaframkvæmdir við Leifsstöð

Árni Sæberg skrifar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar Isavia

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær fyrstu skóflustungu að nýrri 20.000 fermetra viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að hún verði tekin í notkun árið 2024 og heildarkostnaður verði 20,8 milljarðar króna. 

Viðbygging við Leifsstöð mun rísa austur af núverandi flugstöðvarbyggingu. Í tilkynningu frá Isavia segir að um sé að ræða mikilvægan lið í uppbyggingaráætlun flugvallarins. Þjónusta við farþega batni og afkastageta flugvallarins aukist með tilkomu viðbyggingarinnar. 

Verktakafyrirtækið Ístak vinnur jarðvegsvinnu vegna viðbyggingarinnar. Framkvæmdastjóri Ístaks, Karl Andreassen, og forstjóri Isavia, Sveinbjörn Indriðason, undirrituðu samning þess efnis rétt fyrir fyrstu skóflustungu. 

Frá vinstri, Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, eftir undirritun samnings.Isavia

Hlutafjáraukning í janúar forsenda framkvæmda

„Það er mjög ánægjulegt að sjá þetta verða að veruleika. Ákvörðun okkar frá í vetur um að auka hlutafé í Isavia sendi skýr skilaboð um að þrátt fyrir tímabundið ástand í heimsfaraldri vissum við að bjartari tíð væri fram undan.“ segir Bjarni Benediktsson. 

Hlutafjáraukning sú er Bjarni minnist á var samþykkt þann 12. janúar síðastliðinn og hljóðaði upp á 15 milljarða. Forstjóri Isavia segir hlutafjáraukninguna hafa gert félaginu kleift að auka umfang áður fyrirhugaðra framkvæmda við flugstöðina. 

Umfang framkvæmdanna er umtalsvert en um er að ræða fjárfestingu upp á 20,8 milljarða króna. Það gerir framkvæmdirnar þær stærstu sem ráðist hefur verið í hér á landi, frá upphafi faraldurs COVID-19. 

Frá vinstri, Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, Hersir Aron Ólafsson, aðstoðarmaður ráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir skóflustungu.Isavia

Mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf Suðurnesja

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur löngum verið stærsti atvinnuveitandi Suðurnesja en starfsemi hennar hefur legið í hálfgerðum dvala í faraldrinum. Því fylgdu uppsagnir og aukið atvinnuleysi á Suðurnesjum. 

„Fjölmörg ný störf verða til, ekki síst á Suðurnesjum, en það góða svæði mun nú taka við sér af krafti eftir tímabundna lægð í faraldrinum,” segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Stórbætt þjónusta

Forstjóri Isavia segir umbyltingu verða á farangursmóttöku og á efri hæð muni verslunarrými aukast og biðsvæði stækka. Þá bætast við fjögur ný hlið með landgöngubrúm, en þau fara úr 14 í 17 talsins, sem er gríðarlega stórt skref í átt að bættri þjónustu við flugfélög og flugfarþega.

Bjarni nýtti stærðarinnar gröfu við fyrstu skóflustungu, undir handleiðslu starfsmanns Ístaks.Isavia





Fleiri fréttir

Sjá meira


×