Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Agnar Már Másson skrifar 3. nóvember 2026 15:50 Frá gagnaveri Borealis við Blönduós. Aðsend Gagnaverafyrirtækinu Borealis Data Center hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna meintra vanefnda á leigusamningi um tölvubúnað. Stefnufjárhæðin nemur rúmum 6,57 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 900 milljóna króna, auk vaxta.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Adomat & Heidenblut M 1 ehf., sem er í eigu tveggja þýskra fjárfesta tengdum CT Cap-samstæðunni. Franskur innviðasjóður, Vauban Infrastructure Partners, á 92,2 prósenta hlut í Borealis. Málið varðar leigusamning frá júní 2022, þar sem Adomat leigði Borealis tæplega tvö þúsund sérhæfðar tölvur til notkunar í gagnaveri félagsins á Blönduósi. Samkvæmt kröfu Adomat hætti Borealis að greiða mánaðarlega leigu undir lok árs 2022 og hefur síðan hvorki greitt leiguna né afhent búnaðinn til baka, að því er fram kemur í tilkynningunni. Stefnan beinist formlega að Borealis Data Park ehf., sem breytti heiti sínu í BDP ehf. haustið 2025, en það er dótturfélagi Borealis-samstæðunnar. Í tilkynningu Adomat & Heidenblut segir að málið komi upp á viðkvæmum tímapunkti fyrir franska meirihlutaeigandann, Vauban Infrastructure Partners, en Borealis hefur verið í mikilli sókn undanfarið. Félagið hafi tekið 148 milljóna dollara lán snemma árs 2025 og nýverið gert 12 MW orkusamning við Landsvirkjun til að tvöfalda stærð gagnavers síns á Blönduósi. Tilraunir til að leysa deiluna og fá vélbúnaðinn afhentan milli áranna 2023 og 2025 hafi ekki borið árangur vegna þess að Borealis hafi neitað að afhenda vélarnar. Beiðnir Borealis um nauðungarsölu á búnaðinum hjá sýslumönnum fyrr á þessu ári hafi ýmist verið dregnar til baka eða þeim hafnað. Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, þann 3. nóvember 2026, og er dóms að vænta á næstu vikum að því er fram kemur í tilkynningunni.
Gagnaver Orkumál Dómsmál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira