Reynslunni ríkari Rannveig Klara Guðmundsdóttir skrifar 22. mars 2021 19:00 Á menntavísindasviði Háskóla Íslands er löng hefð fyrir fjarnámi. Flest námskeið standa stúdentum til boða í fjarnámi og mörg nýta sér þann valkost. Þótt menntavísindasvið hafi lengi staðið framarlega innan Háskóla Íslands í fjarnámi er mörgu ábótavant: fyrirlestrar hafa oft verið í lélegum gæðum, skortur á upplýsingaflæði og staðlotur illa skipulagðar. Á tímum kórónuveirufaraldursins hefur ýmislegt breyst. Kennarar og stúdentar þurfa að móta sig að fjarnámsforminu. Flestir kennarar voru fljótir að komast til móts við þessar nýju aðstæður með innleiðingu aukinnar fjarfundakennslu. Nú gátu kennarar haldið góða fyrirlestra með nýrri tækni sem nemendur gátu annað hvort sótt í beinni útsendingu eða horft á upptöku seinna meir. Þetta er eitthvað sem þarf að ríghalda í eftir að kófið klárast. Það má ekki falla aftur í sama gamla normið. Allir stúdentar eiga rétt á góðu aðgengi að fyrirlestrum kennara, hvort sem þeir eru staðnemar eða fjarnemar. Þrátt fyrir að gæði fyrirlestra hafi bæst til muna á síðastliðnu ári þá er enn margt sem þarf að laga. Flestir fjarstúdentar kannast við svokallaðar staðlotur, þar sem nemendum er skylt að mæta á staðinn. Þetta var með breyttu sniði í ár. Í stað hefðbundinna staðlotna voru fyrirlestrar í gegnum fjarfundabúnað þar sem gert var ráð fyrir skyldumætingu allra. Þessir fyrirlestrar voru þó oftast fyrri hluta dags sem kom niður á mörgum fjarnemum en mörg þeirra kjósa einmitt að stunda fjarnám sökum dagvinnu sinnar. Þetta hefði mátt vera framkvæmt á annan hátt. Betur hefði farið að taka meira tillit til þarfa fjarnema við uppsetningu námskeiða, t.d. með því að allar staðlotur væru teknar upp. Nokkur misbrestur var á því sem olli því að fjarnemar misstu af hluta þess sem farið var yfir. Aukin áhersla á fjarfundatækni og fjarkennslu ætti að geta aukið sveigjanleika fyrir alla, jafnt kennara og nemendur. Fjarnemar eiga ekki að þurfa að finna fyrir lakari gæðum á námi sínu einungis sökum öðruvísi aðstæðna. Við þurfum að hlúa vel að fjarnemum okkar og passa að þeir hverfi ekki ásjónum okkar þegar kófið klárast. Við þurfum að tryggja að allir fái jafnan aðgang að góðri kennslu og að betra upplýsingaflæði sé tryggt. Höfundur er frambjóðandi Röskvu til Stúdentaráðs Háskóla Íslands á Menntavísindasviði. Experience gained In the School of Education, there has been a long standing tradition of distance learning. Almost all undergraduate courses are available for remote students and many of them do utilize this option. Distance learning has been emphasised in the School of Education, however is still lacking. Lectures are often in poor audio and video quality, information flow is lacking and on-site sessions poorly organized. During the pandemic, many things have changed. Majority of professors and students have had to acclimate to the distance learning model. Professors quickly responded to a new situation with the introduction of online schooling. Professors were then able to teach high quality classes which students had access to, both live and in recordings afterwards. This is something we must continue, once the pandemic is over. We cannot return to our old ways. All students deserve good access to lectures, on-site and remote students alike. Even though lecture quality has greatly improved this year, there are still many aspects that need fixing. Most remote students are familiar with the so-called on-site sessions, where students are obligated to show up, in-person. On-site sessions were conducted differently this year. Instead of the traditional on-site sessions, the sessions were held online and every student's participation was required. These lectures were mostly during the first half of the day, which can be very inconvenient for remote students who study remotely because of their careers. It would have been preferred if remote students were taken into consideration when these courses were planned, for example by offering recordings of these lectures. Unsuitable planning led to many remote students missing out on the lessons during these sessions. Emphasis on distance learning and teleconferencing could increase flexibility for all, both students and professors. Remote students should not receive lesser education, simply because of a different situation. We need to look after our remote students and ensure they are not forgotten once the pandemic is over. We must ensure everyone has access to quality teaching and that the flow of information is improved. The author is a Röskva candidate for the Student Council of the University of Iceland, School of Education. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar